Þrír nýir starfsmenn hafa verið ráðnir í stjórnendastöður hjá N1. Fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins að það séu Hreinn Þorvaldsson, Ragnhildur Leósdóttir og Svavar Kári Grétarsson.
Ragnhildur er sögð hafa nýlega tekið við starfi sölu- og þjónustustjóra orkusviðs hjá N1 sem haldi meðal annars utan um sölu fyrirtækisins á raforku, rafhleðslustöðvum og rekstri þeirra vítt og breitt um land.
„Ragnhildur gegndi síðast starfi deildarstjóra söluráðgjafar hjá Símanum og þar áður var hún vörustjóri Sjónvarps Símans. Ragnhildur hefur lokið Executive MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og er viðskiptafræðingur að mennt með áherslu á markaðsfræði frá Hult International Business School í London,“ segir í tilkynningunni.
Þá hafi Hreinn tekið við starfi rekstrarstjóra, einnig á orkusviði N1, en þangað hafi hann komið frá Festi, þar sem hann starfaði allt frá samruna félaganna árið 2018. Fyrir þann tíma, eða frá 2016, hafi Hreinn starfað á fjármálasviði N1.
„Og má því segja að hann sé kominn heim á ný eftir lærdómsrík ár hjá Festi, þar sem hann bar m.a. ábyrgð á innheimtu fyrir öll félög samstæðunnar auk umsjónar með viðskiptareikningum félaganna og fleiru.“
Hreinn er sagður með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Svavar Kári, sem ráðinn var í stöðu deildarstjóra dagvörusviðs N1, starfaði áður hjá Ölgerðinni og var þar vörumerkjastjóri Collab á innlendum markaði frá 2018 til 2022.
„Þegar Ölgerðin hóf formlega útrás með drykkinn á erlenda markaði færði Svavar sig yfir í útflutningsdeildina, þar sem hann gegndi lykilhlutverki í undirbúningi og vexti vörumerkisins erlendis ásamt því að sinna öðrum útflutningsverkefnum. Svavar er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.“