Vilja bæta öryggi verslunarfólks

Atvinnurekendur og samtök launþega kortleggja ofbeldi og áreitni í verslun og þjónustu.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Eiður Stefánsson, formaður LÍV og Benedikt S Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ.

Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, VR og Samtök verslunar og þjónustu (LÍV, VR og SVÞ) hafa tekið höndum saman til að stuðla að auknu öryggi verslunarfólks á Íslandi en bæði starfsfólk í verslun og atvinnurekendur hafa áhyggjur af vaxandi ofbeldi og áreitni gagnvart verslunarfólki í starfi.

Fulltrúar allra aðila undirrituðu í dag, 16. júní, minnisblað sem leggur grunninn að frekara samstarfi á þessum vettvangi.

Félögin sammælast um það í minnisblaðinu að setja á laggirnar vinnuhóp sem í munu sitja fulltrúar bæði  launafólks og atvinnurekenda. Verkefni hópsins eur meðal annars að draga fram þær áskoranir og hættur sem varða öryggi starfsfólks verslana.

Vinnuhópurinn mun taka saman yfirlit yfir aðgerðir sem fyrirtæki hafa gripið til, verklag og viðmið sem gagnast gætu öðrum fyrirtækjum og starfsfólki þeirra. Þá mun hópurinn setja saman lista með hugmyndum um önnur viðbrögð eða vinnulag sem gagnast gæti í baráttunni gegn ofbeldi í verslun.

Verkefni vinnuhópsins:

  • Að draga fram helstu atvik, áskoranir og áhættur sem varðað hafa öryggi starfsfólks verslunarinnar. Unnið
    verði á grundvelli víðtæks öryggishugtaks þar sem undir getur fallið allt á milli ógnana og ótta og líkamlegs
    eða kynferðislegs ofbeldis.
  • Að setja saman yfirlit yfir aðgerðir sem fyrirtæki hafa gripið til, verklag, viðmið og annað sem gagnast gæti
    fyrirtækjum og starfsfólki þeirra m.t.t. öryggis starfsfólks, þ. á m. forvarnir og viðbragðsáætlanir. Lagt verði
    mat á hvað hefur skilað árangri og hvað ekki.
  • Að taka saman lista með hugmyndum um önnur viðbrögð eða vinnulag sem gagnast gæti fyrirtækjum og
    starfsfólki m.t.t. öryggismála.
  • Að draga fram hvernig fyrirtæki hafa aðstoðað eða komið til móts við starfsfólk í eftirmála öryggisatvika með
    það fyrir augum að draga úr áhrifum þeirra á heilsu starfsfólks.

Fyrirhugað er að starfi vinnuhópsins ljúki fyrir lok október 2025. LÍV, VR og SVÞ munu nýta niðurstöðurnar til frekara samstarfs og samtals við stjórnvöld.

Í könnun VR meðal félagsfólks kom fram að yfir helmingur allra VR félaga hefur orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í starfi á starfsferlinum, eða 54%. Svipað hlutfall á við um sölu- og afgreiðslufólk. Könnunin var gerð haustið 2023 (sjá hér frétt um könnunina á vefsíðu VR).