Jón Cleon hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsmála hjá N1 og hefur þegar hafið störf.
Fram kemur í tilkynningu N1 að Jón hafi víðtæka reynslu í markaðsmálum, þar sem hann hafi meðal annars lagt áherslu á að tengja saman sterka vörumerkjastjórnun og heildstæða upplifun viðskiptavina.
„Á undanförnum árum hefur Jón komið að umbreytingum í markaðsstarfi og þjónustuupplifun í ólíkum greinum atvinnulífsins, þar á meðal hjá Landsvirkjun og nú síðast Isavia, þar sem hann leiddi uppbyggingu og innleiðingu nýrrar markaðs- og upplifunarstefnu fyrir Keflavíkurflugvöll og þróun vörumerkisins KEF, sem hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar hér heima og erlendis fyrir árangursríka og samþætta nálgun,“ segir í tilkynningunni.
Haft er eftir Jóni Cleon að það sem hafi heillað hann við N1 sé hversu stóran sess fyrirtækið eigi í daglegu lífi fólks og fyrirtækja.
„Það er rótgróið á íslenskum markaði og fjölda tækifæra framundan sem ég er spenntur að takast á við með öflugu fólki.“ segir Jón Cleon.
Þá er haft eftir Magnúsi Hafliðasyni, framkvæmdastjóra N1, að hjá fyrirtækinu séu þau virkilega ánægð með að fá Jón til liðs við sig, enda færi hann með sér dýrmæta reynslu, skýra sýn og sterka tilfinningu fyrir því hvernig markaðsmál, þjónusta og upplifun tengist.
„Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið í þessum efnum og ráðning Jóns er eitt af lykilskrefunum í þeirri vegferð,“ segir hann.