Moody’s staðfestir lánshæfismat Arion banka og Íslandsbanka

Báðir bankar eru með lánshæfiseinkunnina A3 fyrir almenn ótryggð skuldabréf og A2/P-1 fyrir langtíma- og skammtíma innlán.

Samsett mynd.

Vegna yfirlýsts áhuga bæði Arion banka og Íslandsbanka á samruna við Kviku banka hefur alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s staðfest lánshæfismat bæði Arion og Íslandsbanka.

Báðir bankar tilkynntu um staðfest mat í fréttakerfi Kauphallarinnar, hér og hér.

Í tilkynningu Arion kemur fram horfur séu áfram stöðugar hvað varðar lánshæfismat bankans.

„Moody´s Ratings hefur staðfest A2/P-1 langtíma- og skammtíma innlán og A3 lánshæfismat Arion banka fyrir langtíma útgáfur og almenn ótryggð skuldabréf með stöðugum horfum fyrir langtímaeinkunnir,“ segir þar.

Moody’s telur sömuleiðis að hörfur séu stöðugar hvað Íslandsbanka varðar.

„Moody’s Ratings (Moody’s) hefur í dag staðfest A3 lánshæfismat Íslandsbanka, A2 langtíma- og P-1 skammtíma lánshæfismat fyrir innlán, og A3 lánshæfismat fyrir almenn ótryggð skuldabréf með stöðugum horfum. Langtíma lánshæfismat innlána og lánshæfismat bankans sem útgefanda eru með stöðugum horfum. Grunnlánshæfismat (BCA) og aðlagað BCA hefur verið staðfest sem baa2,“ segir í tilkynningu bankans.