Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins (SI) sem ráðgjafi. Hann hefur þegar hafið störf hjá samtökunum eftir því sem fram kemur í tilkynningu þeirra.
Fram kemur að Magnús hafi verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði samskipta og upplýsingamiðlunar síðastliðið ár.
„Hann var forstöðumaður samskipta hjá Kviku banka á árunum 2023-2024 og þar áður forstöðumaður samskiptasviðs hjá Landsvirkjun í 11 ár, á árunum 2012-2023,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að áður hafi hann starfað hjá Reykjavíkurborg sem skrifstofustjóri og aðstoðarmaður borgarstjóra, auk þess sem hann hafi um skeið verið framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto Alcan á Íslandi.
Magnús er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur samkvæmt tilkynningu SI jafnframt lagt stund á MBM framhaldsnám í sama skóla með áherslu á stjórnun og stefnumótun.