Stærstu hluthafar Play vilja taka félagið yfir

Félag sem vill taka yfir flugfélagið Play verður fjármagnað með að lágmarki 20 milljóna dollara fjárframlagi.

Mynd: Fly Play

Tveir af stærstu hluthöfum flugfélagsins Play stefna á að gera yfirtökutilboð í alla hluti flugfélagsins og afskrá félagið af hlutabréfamarkaði. Samhliða færi fram hlutafjáraukning. Félagði greindi frá þessari fyrirætlan í tilkynningu til Kauphallar.

Í tilkynningu á vef Play kemur fram að yfirtökuhópurinn, sem leiddur sé af Einari Erni Ólafssyni forstjóra og Elíasi Skúla Skúlasyni varaformanni stjórnar, ætli sér áfram að stuðla að samkeppni á íslenskum flugmarkaði neytendum til góða undir merkjum Play með því að bjóða hagkvæm flugfargjöld fyrir Íslendinga og ferðamenn.

Einar Örn ÓlafssonEinar Örn Ólafsson, fjárfestir og forstjóri Play:

„Hér er fyrst og fremst um að ræða áform um praktískar breytingar á starfsemi íslenska flugfélagsins Play. Með þeim leggjum við áherslu á arðbæra þætti rekstursins, það er sólarlandaflug, og hættum þeim hluta rekstursins sem hefur ekki skilað árangri.

Við hlökkum til að halda áfram að stuðla að samkeppni á flugmarkaði í rauðu vélunum, með íslenskum áhöfnum. Meginmarkmið okkar er nú sem fyrr að bjóða Íslendingum hagkvæm flugfarfargjöld í sólina.“

Hópurinn leggi áherslu á eftirfarandi þætti:

  • Gott framboð til sólarlandastaða frá Íslandi.
  • Flugi til Norður-Ameríku verði hætt frá og með október 2025.
  • Borgaráfangastöðum í Norður-Evrópu mun fækka.
  • Flogið verður undir maltnesku flugrekstrarleyfi og íslenska flugrekstrarleyfinu verður skilað.
  • Fjórar flugvélar munu sinna flugi til og frá Íslandi, einkum til sólarlanda.
  • Hinar sex vélarnar verða leigðar í arðbær verkefni til annarra flugrekenda.
  • Félagið verður afskráð af hlutabréfamarkaði.
  • Aukin áhersla á skrifstofur félagsins í Möltu og Litháen.

„Í stuttu máli munu farþegar frá Íslandi ekki finna fyrir breytingum á þjónustu félagsins. Yfirbragð og ásýnd félagsins og flugvéla verða óbreytt. Farþegaþoturnar verða ennþá rauðar, áhafnir verða frá Íslandi og starfa eftir íslenskum kjarasamningum,“ segir í tilkynningunni.

Yfirtökuhópurinn komi til með að gera tilboð sem hljóði upp á eina krónu fyrir hvern hlut og geti seljendur annað hvort fengið greitt í formi hlutar í nýju félagi eða reiðufé. 

Með þessum áherslum segist yfirtökuhópurinn ætla að halda áfram þeirri vegferð að auka vægi arðbærs hluta rekstur félagsins, sólarlandaferða og leiguverkefna, og hætta þeim hluta starfseminnar sem skilað hafi lakari árangri, sem sé flug til Bandaríkjanna og tengiflug.

Fram kemur að yfirtökufélagið verði fjármagnað með að lágmarki 20 miljóna dollara, eða sem svarar rúmlega 2,5 milljarða króna, fjárframlagi en af þeirri fjárhæð er þegar skuldbinding fyrir rúmlega þriðjungi fjárhæðarinnar.