Verslun Krónunnar í Vallakór í Kópavogi opnar eftir endurbætur fimmtudaginn 5. júní. Fram kemur í tilkynningu að verslunarrýmið hafi verið tekið í gegn með það fyrir augum að ferskleiki og fjölbreytt vöruúrval fái að njóta sín.
Opnar klukkan 8 fyrir morgunglaða
Verslun Krónunnar í Vallakór opnaði í september 2013 og hefur því þjónustað íbúa á svæðinu í hartnær 12 ár.
„Það var því kominn tími til að verslunin fengi yfirhalningu eins og við höfum gert í öðrum verslunum Krónunnar, til dæmis í Hamraborg og Grafarholti. Með þessu mætum við betur fjölbreyttum þörfum viðskiptavina og bætum upplifun til muna,“ segir Unnur Thelma Gestsdóttir, verslunarstjóri Krónunnar í Vallakór.
Hún segist þakka viðskiptavinum fyrir biðlundina á meðan framkvæmdir stóðu yfir.
„Við hlökkum mikið til að bjóða íbúa Vatnsenda og aðra viðskiptavini velkomna á ný. Við höfum einnig lengt opnunartíma verslunarinnar sem áður opnaði klukkan 9 á morgnana en opnar nú klukkan 8, morgunhönum eflaust til mikillar gleði.“
Umhverfisvænar lausnir og betra flæði í gegnum verslunina
Fram kemur í tilkynningu Krónunnar að í Vallakór hafi verið lögð rík áhersla á umhverfisvænar lausnir og betri orkunýtingu. Nefnd er orkusparandi LED lýsing ásamt því að kælar og frystar séu lokaðir og knúnir með umhverfisvænu kerfi sem dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Grænar innkaupakerrur úr endurunnu plasti úr sjónum prýði jafnframt verslunina, en það sé hluti af framtaki Krónunnar til að draga úr plastmengun og stuðla að sjálfbærari rekstri.
Haft er eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, að í yfirhalningu sem þessari sé að mörgu að hyggja.
„Við höfum lagt upp úr því að bæta flæði og upplifun fyrir viðskiptavini. Verslunin er að sjálfsögðu svansvottuð líkt og allar okkar verslanir,“ segir Guðrún.
„Við leggjum nú sem endranær áherslu á ferskleika, fjölbreytt vöruúrval og hagstæð verð en þetta eru lykilatriði sem við viljum að viðskiptavinir upplifi strax við komu í verslunina. Það eru fjölmargir sem koma að svona verkefni og við erum gríðarlega spennt að heyra hvað okkar viðskiptavinum finnst um breytingarnar.“

Snjallari innkaup og spennandi tilboð
Þá segir Krónan að til að gera innkaupin enn þægilegri hafi ný lausn í snjalllausninni Skannað og skundað verið innleidd í Vallakór. Nú geti viðskiptavinir leitað að vöru í appinu og séð á yfirlitskorti hvar hún er staðsett í versluninni, auk þess sem verðmerkingin byrjar að blikka þegar viðskiptavinir nálgast vöruna.
Lausnin hafi áður verið tekin í notkun í verslunum Krónunnar á Granda, Grafarholti, Akrabraut, Lindum og Bíldshöfða við góðar undirtektir.
Í tilefni opnunar verslunarinnar verða ýmis tilboð í gangi alla opnunarhelgina, meðan birgðir endast. Þar á meðal verður 5% afsláttur af öllum vörum þegar notast er við Skannað og skundað í Krónuappinu.