Landsvirkjun hefur frá árinu 2022 kannað möguleikann á framleiðslu á grænu raf-metanóli á Bakka við Húsavík í samstarfi við PCC SE, móðurfélag kísilvers PCC á Bakka. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að leggja verkefnið á hilluna um óákveðinn tíma, að því er fram kemur í tilkynningu Landsvirkjunar.
„Hugmyndin að verkefninu fólst í framleiðslu á kolefnishlutlausu metanóli með koldíoxíði sem fangað yrði frá kísilverinu og með notkun endurnýjanlegrar raforku frá Landsvirkjun. Markmiðið var að stuðla að orkuskiptum á hafi hérlendis með því að framleiða vistvænt eldsneyti fyrir skip,“ segir í umfjöllun Landsvirkjunar.
Fram kemur að ákvörðunin um að fresta frekari þróun verkefnisins hafi verið tekin í desember síðastliðnum og að hún byggi á erfiðu viðskiptaumhverfi rafeldsneytisvinnslu og takmarkaðri eftirspurn á markaði, sérstaklega við það verð sem nauðsynlegt væri til að gera verkefnið arðbært.
Landsvirkjun er þó enn sögð hafa trú á mikilvægi græns rafeldsneytis í orkuskiptum á hafi til lengri tíma litið og útilokar ekki að endurmeta verkefnið síðar, ef markaðsaðstæður batna.
„Þessi ákvörðun er í samræmi við nýja stefnu Landsvirkjunar um rafeldsneyti og loftslagstengda viðskiptaþróun, þar sem fram kemur að stærri rafeldsneytisverkefni séu ekki talin samkeppnishæf að svo stöddu en að tækifæri gætu verið á því sviði þegar til lengri tíma er litið.“