Landsvirkjun gefur út græn skuldabréf á Bandaríkjamarkaði

Græn skuldabréfaútgáfa Landsvirkjunar er sögð endurspegla áherslur fyrirtækisins á sjálfbærnitengda fjármögnun.

Vindmyllur - Wind turbines
Mynd: Zicheng Duan-Unsplash

Landsvirkjun hefur gefið út græn skuldabréf á bandarískum skuldabréfamarkaði að fjárhæð 150 milljónir bandaríkjadala. Fram kemur í tilkynningu félagsins til Kauphallar að upphæðin samsvari um 20 milljörðum íslenskra króna.

„Upphaflega var stefnt að útgáfu að fjárhæð 125 milljónir USD, en mikill áhugi fjárfesta leiddi til þess að útboðið var stækkað og lauk í 150 milljónum,“ segir í tilkynningunni.

Skuldabréfin eru á gjalddaga eftir sex og átta ár og voru gefin út í þremur flokkum. Tveir flokkanna bera fasta vexti, 5,17% og 5,37%, sem jafngildir 115-125 punkta álagi á bandarísk ríkisskuldabréf.

Þriðji flokkurinn ber fljótandi vexti sem miðast við SOFR-vexti með 144 punkta álagi. Um er að ræða skuldabréfaútgáfu án fjárhagslegra skilyrða, sem sagt er endurspegla traust fjárfesta á fjárhagslegri stöðu Landsvirkjunar.

Barclays Capital Inc. og ING Financial Markets LLC voru umsjónaraðilar útgáfunnar.

„Útgáfan er græn og endurspeglar skýrar áherslur Landsvirkjunar á sjálfbærnitengda fjármögnun.“

Fjármögnun nýtt í nýjar virkjanir

Fram kemur að fjármagnið verði nýtt við virkjanaframkvæmdir Landsvirkjunar, þar á meðal framkvæmdir við Vaðölduver og Hvammsvirkjun.

Vaðölduver verður fyrsta vindorkuver landsins með 28 vindmyllum. Gert er ráð fyrir að fyrri 14 vindmyllurnar verði gangsettar haustið 2026 og að Vaðölduver verði komið í fullan rekstur fyrir lok árs 2027.

Hvammsvirkjun verður svo áttunda vatnsaflsstöðin á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.

Grænn fjármögnunarrammi

Skuldabréfin eru gefin út innan græns fjármögnunarramma Landsvirkjunar sem sagður er endurspegla skuldbindingu fyrirtækisins við sjálfbærni- og loftslagsmál.

„Grænum fjármögnunarramma fylgir að fjármunirnir verði nýttir til að fjármagna eignir eða verkefni sem hafa jákvæð áhrif á umhverfi og loftslagsmál.“