Árstíðabundin sveifla einkennir afkomu fyrsta ársfjórðungs

Tekjur Eimskips jukust um 6,5 milljónir evra á milli ára samkvæmt nýbirtu árshlutauppgjöri.

Brúarfoss, flutningaskip Eimskips. Mynd: Eimskip

Afkoma Eimskips eftir skatta var neikvæð um 0,8 milljónir evra, sem svarar til tæplega 116 milljóna króna, á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við jákvæða afkomu að fjárhæð 0,5 milljónir evra (rúmar 72 milljónir króna) á sama tímabili í fyrra. Í frétt félagsins er breytingin á milli ára helst sögð skýrast af auknum afskriftum og lækkun afkomu hlutdeildarfélaga.

Fram kemur að EBITDA fjórðungsins hafi numið 15,3 milljónum evra samanborið við 14,2 milljónir evra á sama tímabili 2024, sem sé aukning um 7,7%. EBITDA hlutfall var 7,7% samanborið við 7,3% á sama fjórðungi fyrra árs.

„Sjóðstreymi frá rekstri á fjórðunginum var sterkt og nam um 16 milljónum evra en til samanburðar var það 2,7 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2024,“ segir í tilkynningu félagsins.

Tekjur jukust á milli ára og námu 200,3 milljónum evra á fjórðungnum og hækkuðu um 6,5 milljónir evra eða um 3,4% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2024. Rekstrarkostnaður nam 185,0 milljónum evra og jókst um 5,4 milljónir evra eða 3,0% frá fyrra ári.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, segir í frétt félagsins að fyrstu mánuðir ársins hafi farið nokkuð vel af stað. Hóflegur vöxtur hafi verið í EBITDA afkomu á fyrsta ársfjórðungi, sem hafi aukist um 1,1 milljón evra frá fyrra ári.

„Sögulega hefur fyrsti ársfjórðungur verið sá tími árs sem minnst umsvif eru í starfsemi félagsins og í ár bættust við kostnaðarsamar truflanir í rekstri vegna óvenju slæms veðurs á Norður-Atlantshafi en þó var 6,6 prósent magnaukning í siglingarkerfinu. Hávær umræða hefur verið um nýja tollastefnu Bandaríkjanna og áhrif þeirra á fyrirtæki og hagkerfi heimsins. Þrátt fyrir óvissu sem þetta hefur skapað eru áhrifin á Eimskip enn sem komið er óveruleg.“

Vilhelm segir bætta afkomu af siglingarkerfinu einna helst mega rekja til aukins magns og betri nýtingar ásamt því að kostnaður á hverja flutta einingu hafi lækkað lítillega. Hins vegar hafi breytt samsetning flutningsmagns áhrif á meðalflutningsverð, sem verið hafi óbreytt á milli ára, þrátt fyrir hærri meðalverð í Trans-Atlantic flutningum.

„Þá erum við ánægð að sjá að breytingar sem voru gerðar á gámasiglingakerfinu á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs hafa skilað sér í færri sigldum mílum og minni olíunotkun og vegur það upp á móti almennum kostnaðarverðhækkunum og verðbólguþrýstingi,“ segir hann.

Þá hafi afkoma alþjóðlegu flutningsmiðlunarinnar verið með ágætum og EBITDA hækkað í 2,5m evra úr 2,0m evra á síðasta ári þrátt fyrir 12% lækkun í magni.

„Minnkun í magni skýrist helst af þeim sviptingum sem hafa átt sér stað um þessar mundir á alþjóðlegum mörkuðum vegna yfirvofandi tolla til og frá Bandaríkjunum. Þá hefur einnig borið á skorti á gámum í Asíu hjá sumum af stóru alþjóðlegu skipafélögunum og truflunum í hafnarstarfsemi þeirra víðsvegar um heiminn sem hefur áhrif á þá þjónustu sem við veitum.“

Í annarri flutningstengdri starfsemi segir Vilhelm umsvif hafa verið „nokkuð góð“ í landflutningum og hafnarstarfsemi á sama tíma og nýting í vöruhúsastarfsemi hafi minnkað á fjórðunginum vegna minna birgðahalds viðskiptavina á sjávarafurðum, sem hafi litað afkomu þessarar starfsemi.

„Eins og önnur fyrirtæki í alþjóðlegum rekstri höfum við ekki farið varhluta af þeim áskorunum sem fylgja reglugerðarkröfum og vaxandi óvissu í alþjóðaviðskiptum. Við teljum varhugavert að eftir langt tímabil hárra vaxta og mikillar verðbólgu hér á landi sé nú verið að horfa til aukinnar skattbyrði á fyrirtæki og almenning.“

Heilt yfir segir Vilhelm að hjá Eimskip sé fólk nokkuð bjartsýnt fyrir komandi mánuðum.

„Enda sjáum við venjubundnar árstíðarsveiflur í rekstrinum okkar þar sem annar og þriðji fjórðungur eru að jafnaði þeir umsvifamestu í starfseminni. Þá er sérstaða Eimskips á Norður-Atlantshafinu almennt þolnari gagnvart efnahagslegum sveiflum en hún byggir á heimamarkaði sem hefur á að skipa mjög inn- og útflutningsdrifnum hagkerfum sem treysta á sjóflutninga að megninu til og að sama skapi er áhersla félagsins í alþjóðlegu flutningsmiðlununni að þjónusta viðskiptavini í flutningum á ferskum og frosnum matvælum.“

Helstu atriði í afkomu fyrsta ársfjórðungs 2025 

Árstíðabundin sveifla í rekstri félagsins einkennir afkomu fyrsta ársfjórðungs sem þó batnar á milli ára.

  • Gott magn var í siglingarkerfinu á fjórðungnum sem óx um 6,6% en meðalflutningsverð voru óbreytt frá fyrra ári þrátt fyrir hækkun á verðum í Trans-Atlantic. 
  • Góð afkoma af alþjóðlegri flutningsmiðlun á fjórðungnum, þrátt fyrir minnkun á magni, sem byggðist á hagstæðri samsetningu verkefna.
  • Í annarri flutningatengdri þjónustu lækkaði afkoman á milli ára, meðal annars vegna minni nýtingar í frystigeymslum félagsins, lægri kvóta og lægri birgðastöðu viðskiptavina okkar.