Kvika hagnaðist um rúma 2 milljarða á fyrsta ársfjórðungi

Einskiptisliðir vegna kaupa Kviku á hlut stjórnenda í Ortus Secured Finance höfðu umtalsverð áhrif á rekstrartölur bankans á fyrsta ársfjórðungi.

Rekstur Kviku gekk vel á fyrsta ársfjórðungi, að teknu tilliti til einskiptisliða, að sögn Ármanns Þorvaldssonar forstjóra bankans.

„Hreinar vaxtatekjur jukust um fjórðung en kostnaður jókst minna og má þar nefna að launakostnaður jókst um tæp 5%. Annar kostnaður jókst hins vegar á milli ára og litaðist meðal annars af kostnaði sem féll til við sölu á TM,“ segir hann í kynningu bankans á árshlutauppgjörinu.

Ármann bendir á að í fjórðungnum hafi verið gengið endanlega frá sölu á tryggingafélaginu TM til Landsbankans. Stór hluti söluandvirðis TM, sem nam rúmlega 32 milljörðum króna, hafi verið greiddur út til hluthafa með arðgreiðslu og kaupum á eigin hlutabréfum.

„Verulegur hlutur situr hins vegar eftir sem eigið fé í bankanum og mun leggja grunninn að vexti bankans á næstu árum.“

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku.

Þá hafi endanlega verið lokið við kaup á hlut stjórnenda í Ortus Secured Finance og eigi bankinn nú allt hlutafé í félaginu. „Þessi kaup gera okkur kleift að samþætta bresku starfsemina okkar, lækka kostnað, endurfjármagna óhagkvæmari erlendar skuldir og leggja grunninn að frekari vexti í Bretlandi,“ segir hann.

Einskiptisliðir vegna þessara viðskipta hafi hins vegar haft umtalsverð áhrif á rekstrartölur bankans á ársfjórðungnum, en ef horft sé framhjá þeim liðum, sjáist að afkoma af reglubundinni starfsemi Kviku fyrir skatta hafi verið prýðileg.

„Mikil aukning var á hreinum vaxtatekjum á milli ára, eða sem nemur rúmlega 25%. Aukninguna má rekja til stækkunar lánabókar, lækkunar fjármagnskostnaðar og tímabundið hárrar lausafjárstöðu í kjölfar sölu á TM, sem lækkaði aftur í kjölfar arðgreiðslu í apríl. Sá hluti söluverðsins, sem eftir situr í bankanum, mun hins vegar skila áfram ávöxtun og því má ætla að vaxtatekjur  verði áfram sterkar.“

Ármann segir þóknana- og fjárfestingatekjur hafa borið merki erfiðrar tíðar á verðbréfamörkuðum og þar hafi orðið lítillegur samdráttur á milli ára. Þá hafi gengið ágætlega að halda aftur af kostnaðaraukningu, sé horft fram hjá einskiptisliðum. Fjöldi starfsfólks sé óbreyttur frá síðasta ársfjórðungi.

„Kvika er nú í öfundsverðri stöðu til að sækja fram og vaxa, líkt og áætlanir bankans gera ráð fyrir. Bankinn er með afar sterka eiginfjár- og lausafjárstöðu eftir söluna á TM og stöðugar vaxtatekjur hafa komið í stað sveiflukenndari tekna af tryggingastarfsemi. Innviðir bankans, sem hafa verið aðlagaðir að brottför TM úr samstæðunni, eru öflugir og skalanlegir, sem leggur góðan grunn að framsókn okkar á Íslandi og í Bretlandi.“

Helstu atriði í afkomu Kviku á fyrsta ársfjórðungi 2025

  • Hagnaður eftir skatta nam 2.086 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 1.083 m.kr. á 1F 2024 og eykst um 1.003 m.kr. eða 92,6%.
  • Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi, leiðréttur fyrir einskiptisliðum, nam 1.590 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 1.215 m.kr. á 1F 2024 og hækkar því um 375 m.kr. frá fyrra ári eða 31%. Óleiðréttur hagnaður fyrir skatta á fjórðungnum nam 701 m.kr.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 2.917 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 2.326 m.kr. á 1F 2024 og hækkuðu því um 590 m.kr. frá fyrra ári eða 25,4%.
  • Vaxtamunur var 4,4% á 1F 2025, samanborið við 3,8% á 1F 2024. Hækkun vaxtamunar á milli ára skýrist m.a. af sterkri lausafjárstöðu, betri fjármögnunarkjörum og stækkun lánasafns á milli ára.
  • Hreinar þóknanatekjur voru 1.520 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 1.633 m.kr. á 1F 2024 og lækkuðu því um 113 m.kr. frá fyrra ári eða 6,9%.
  • Aðrar hreinar rekstrartekjur námu 12 m.kr. á 1F 2025 samanborið við 110 m.kr. á 1F 2024 og lækkuðu því um 98 m.kr. frá fyrra ári eða 89,1%.
  • Rekstrarkostnaður nam 3.090 m.kr. á 1F 2025, samanborið við 2.666 m.kr. á 1F 2024 og eykst um 424 m.kr. frá fyrra ári eða 15,9%. Rekstrarkostnaður leiðréttur fyrir einskiptisliðum nam 2.865 m.kr. á 1F 2025.
  • Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta, leiðrétt fyrir einskiptisliðum,var 17,7%. Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta af afkomu samkvæmt rekstrarreikningi var 7,8%.
  • Hagnaður á hlut nam 0,45 kr. á 1F 2025, samanborið við 0,23 kr. á 1F 2024.