Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi er í samræmi við markmið þrátt fyrir ýmsar áskoranir í ytra umhverfi, segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka í tilkynningu bankans.
„Það var góður meðbyr á nær öllum sviðum starfseminnar en styrkur Arion samstæðunnar er ekki síst fjölbreytni þjónustunnar sem nær til flestallra sviða fjármála heimila, fyrirtækja og fjárfesta. Tekjusköpun er því mjög fjölbreytt sem hefur sveiflujafnandi áhrif og eykur áhættudreifingu í starfsemi okkar,“ segir hann.
Benedikt segir fjárhagslegan styrk samstæðunnar mikinn og eigin- og lausafjárstaða góða sem geri bankanum kleift að efla þjónustu sína og takast á við margvíslegar áskoranir í ytra umhverfi.
„Að þróa og efla þjónustu bankans hefur einmitt verið í forgangi undanfarna mánuði og ár og verður áfram. Það á jafnt við um stafrænu þjónustuleiðirnar okkar og þá persónulegu þjónustu sem við veitum viðskiptavinum okkar í útibúum og þjónustuveri. Við sjáum árangur þeirrar vinnu meðal annars í vinsældum Arion appsins. Á meðal nýjunga, sem við kynntum í upphafi árs, er nýtt fríðindakerfi fyrir viðskiptavini okkar sem er aðgengilegt í Arion appinu.“
Lykiltölur á fyrsta ársfjórðungi 2025
- Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 6,4 ma.kr. á fjórðungnum, samanborið við 4,4 ma.kr. á 1F 2024
- Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka var 12,8%, samanborið við 9,1% á 1F 2024
- Hagnaður á hlut var 4,59 krónur, samanborið við 3,07 krónur á 1F 2024
- Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir var 3,1%, sami og 1F 2024
- Þóknanastarfsemin skilaði 4,5 mö.kr., samanborið við 3,4 ma.kr. á 1F 2024, og er þetta besti fjórðungur frá árinu 2022 þegar kemur að þóknunum
- Rekstur Varðar styrktist í samanburði við 1F 2024 en tap fjórðungsins nam 0,6 m.kr.
- Aðrar rekstrartekjur voru 3,3 ma.kr. sem skýrist að mestu af virðishækkun þróunareigna
- Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 15,4% í samanburði við 1F 2024
- Rekstrarkostnaður jókst um 0,7% samanborið við 1F árið 2024
- Virkt skatthlutfall var 32,2%
- Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 42,6%, samanborið við 48,4% á 1F 2024
- Kostnaðarhlutfallið var 34,7%, í samanburði við 45,3% á 1F 2024
- Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 4,2% á fjórðungnum
- Lán til viðskiptavina jukust um 3,9 ma.kr. eða 0,3% á fjórðungnum
- Kaup eigin hlutabréfa og arðgreiðslur námu 19,1 ma.kr. á fjórðungnum
- Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 21,5% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,3% í lok mars. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar fjórðungsins að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 21,2% í lok mars og hlutfall eiginfjárþáttar 1 17,9%. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.