Kalla eftir þátttöku ungs fólks á Model NATO-ráðstefnu í haust

Á ráðstefnunni taka þátttakendur að sér hlutverk fulltrúa aðildarríkja NATO og vinna saman að því að bregðast við sviðsettu alþjóðlegu neyðarástandi.

NATO HQ, OTAN, höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins, Atlantshafsbandalagið.
Höfuðstöðvar NATO í Brussel. Þær opnuðu 2018 í nágrenni gömlu höfuðstöðvanna sem höfðu til áratuga verið í gömlum herspítala. Mynd/NATO

Annan október næstkomandi verður á Alþingi haldin svonefnd Model NATO-ráðstefna.

Í færslu utanríkisráðuneytisins er ráðstefnan sögð ætluð er ungu fólki á aldrinum 18 til 35 ára sem áhuga hafi á alþjóðamálum, stjórnmálum, lögfræði, heimspeki, löggæslu, varnarmálum eða opinberri þjónustu.

„Ráðstefnan er skipulögð af utanríkisráðuneytinu í samstarfi við breska sendiráðið í Reykjavík, Alþingi, YATA Ísland og Varðberg. Háskólinn í Birmingham sér um fundarstjórn,“ segir í færslu ráðuneytisins.

Fram kemur að á ráðstefnunni taki þátttakendur að sér hlutverk fulltrúa aðildarríkja NATO og vinni saman að því að bregðast við sviðsettu alþjóðlegu neyðarástandi.

„Sviðsmyndin þróast yfir daginn og krefst þess að þátttakendur beiti hraðri hugsun, samningatækni, diplómatískri færni og getu til að vinna undir álagi.“

Markmiðið er sagt vera að veita þátttakendum innsýn í ákvarðanatöku innan Atlantshafsbandalagsins og hvernig aðildarríki þurfi að samræma ólíka hagsmuni, sjónarmið og áherslur þegar alþjóðlegt öryggi sé í húfi.

„Model NATO er því einstakt tækifæri fyrir ungt fólk til að kynnast starfsemi alþjóðastofnunar sem hefur mikil áhrif á öryggi og stjórnmál í Evrópu og á Norður-Atlantshafssvæðinu.“

Ráðuneytið tiltekur að fundurinn fari fram á ensku, þátttaka sé að kostnaðarlaus og 18 til 35 ára geti sótt um.

„Verði aðsókn mikil kann íslenskum ríkisborgurum að verða veittur forgangur.“

Fram kemur að þau sem valin verði til þátttöku fái tilkynningu í lok ágúst.

„Í kjölfarið verður þátttakendum úthlutað ríki og teymi, auk þess sem þau fá nánari upplýsingar um dagskrá og undirbúning um tveimur vikum fyrir ráðstefnuna. Gert er ráð fyrir að ráðstefnan standi yfir meiripart dags.“

Eins standi þátttakendum til boða að taka þátt í sérstökum fræðsludegi auk skoðunarferðar á öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli í kringum ráðstefnuna í haust.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og frestur til að sækja um er til 20. ágúst næstkomandi.