Ný áætlun miðar að því að virkja nærsamfélagið í bráðaviðbragði

Vinna á samræmd þjónustuviðmið og útkallsáætlanir fyrir hvert svæði landsins þar sem meðal annars verði kveðið á um viðbragðstíma, menntunarkröfur og stigun viðbragða vegna sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana.

Sjúkraflutningur, börur, sjúkrabíll, sjúkraflutningafólk, malarvegur.
Sjúkraflutningur. Mynd/Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana til ársins 2030. Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að áætlunin miði að því að efla gæði og öryggi bráðaþjónustu um allt land.

Ráðuneytið segir að aðgerðaáætlunina hafi unnið vinnuhópur sem skipaður hafi verið skipaður breiðum hópi hagaðila og fagfólks sem tengist málefnum sjúkraflutninga um allt land.

Í starfi sínu hafi hópurinn stuðst við stefnu um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030 og heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

„Áhersla er lögð á samræmingu og skýra forystu í málaflokknum og vel skilgreinda verkaskiptingu og ábyrgð þeirra aðila sem að sjúkraflutningum koma,“ segir í frétt ráðuneytisins.

Unnin verði samræmd þjónustuviðmið og útkallsáætlanir fyrir hvert svæði landsins þar sem meðal annars verði kveðið á um viðbragðstíma, menntunarkröfur og stigun viðbragða.

Þá verði stafræn skráning í sjúkraflutningum efld til að bæta yfirsýn, gæðamat og öryggi þjónustunnar.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

„Með aðgerðaáætluninni er lagður grunnur að áframhaldandi þróun öflugrar, samræmdrar og sjúklingamiðaðrar bráðaþjónustu á Íslandi,“ hefur ráðuneytið eftir Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra. 

Fram kemur að í áætluninni sé fjallað um mönnun og menntun, meðal annars eflingu náms og mat á ávinningi þess að bjóða upp á nám bráðatækna við íslenska háskóla.

„Lagt er til að mótaður verði rammi um símenntun fyrir sjúkraflutningamenn og bráðatækna sem starfa við sjúkraflutninga og unnin drög að skilgreindum hæfniviðmiðum.“

Einnig séu lagðir til möguleikar á tilfærslu verkefna og breyttri verkaskiptingu milli heilbrigðisstétta til að tryggja að menntun og hæfni þeirra nýtist sem best.

„Hermiþjálfun verður aukin og sérstök námskeið boðin fyrir heilbrigðisstarfsfólk og viðbragðsaðila sem koma að bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana.“

Þá verði umgjörð og boðun vettvangsliða styrkt.

„Vettvangsliðar er samheiti fyrir fyrstuhjálparliða sem nýttir eru til að veita fyrstu hjálp áður en neyðar- eða sjúkrabíll mætir á svæðið.“

Síðast en ekki síst sé áhersla lögð á að virkja nærsamfélagið í hverjum stað í bráðaviðbragði til að auka líkur á góðri útkomu þegar á reyni.