Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað Arnald Sölva Kristjánsson, lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands, formann fjármálaráðs.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið greinir frá því að Daði Már og Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands hafi síðastliðinn föstudag undirritað samkomulag um umgjörð á starfsemi ráðsins og að formennska í ráðinu teljist hluti af akademísku starfi Arnaldar Sölva.
„Með samkomulaginu er tryggt að Háskóli Íslands styðji við þann hluta starfs Arnaldar Sölva sem tengist starfi fjármálaráðs ásamt því að útvega honum aðstöðu til að sinna störfum sínum,“ segir þar.
Markmið samkomulagsins er sagt vera að skapa faglega umgjörð um starfsemi ráðsins.
„Fjármálaráð gegnir mikilvægu hlutverki í að veita ríkinu aðhald. Þessi breyting styrkir stofnanaumgjörð ráðsins og eflir á sama tíma burði hagfræðideildar Háskóla Íslands til rannsókna í opinberum fjármálum“ segir Daði Már í tilkynningunni.
Þá segir að Fjármálaráði sé ætlað að tryggja að fram fari hlutlægt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Það starfir samkvæmt 13. gr. laga um opinber fjármál og sé sjálfstætt í störfum sínum.
„Hlutverk þess er að leggja mat á hvort fimm ára fjármálastefna og fjármálaáætlun fylgi þeim grunngildum sem lög um opinber fjármál kveða á um.“
Fram kemur að formaður fjármálaráðs sé skipaður til fimm ára í senn af fjármála- og efnahagsráðherra að fenginni tilnefningu frá forsætisráðherra.
„Arnaldur Sölvi hefur setið í fjármálaráði frá febrúar 2023 og gegndi varaformennsku í ráðinu.“
