Ísland hefur sagt sig úr ECT-samningnum um orkusáttmála (e. Energy Charter Treaty) af því hann gangi gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um orkufullveldi og sjálfsákvörðunarrétt stjórnvalda í orkumálum.
„Úrsögnin tekur gildi árið 2027 í samræmi við ákvæði samningsins og með því falla niður allar greiðslur til skrifstofu samningsins,“ segir í tilkynningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.
Fram kemur að samningurinn hafi verið undirritaður árið 1994 og fullgiltur af Íslands hálfu árið 2015, en markmið hans hafi meðal annars verið að tryggja fjárfestavernd og liðka fyrir óheftum viðskiptum með orku yfir landamæri.
„Með fullgildingu samningsins lýstu íslensk stjórnvöld vilja til að stuðla að frjálsum viðskiptum með orkuauðlindir og samvinnu á sviði orkuflutninga þvert á landamæri.“

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er sagður hafa sett af stað vinnu við að undirbúa úrsögn Íslands árið 2025 með hliðsjón af stefnu Íslands í orku- og loftslagsmálum.
„Af því tilefni setti ráðuneytið af stað samráðsferli en í því ferli komu ekki fram sjónarmið frá hagsmunaaðilum sem mæltu fyrir áframhaldandi aðild Íslands.“
Þá kemur fram að á undanförnum árum hafi Evrópusambandið og að minnsta kosti tíu Evrópuríki sagt sig frá samningnum.
„Þykir samningurinn úreltur og samræmast illa nútímaáherslum í loftslags- og orkumálum.“
Samningurinn veiti fyrirtækjum rétt til að höfða mál gegn ríkjum fyrir sérstökum lokuðum gerðadómi, utan hefðbundins dómskerfis, vegna aðgerða sem geti haft áhrif á arðsemi fjárfestinga þeirra.
„Á annað hundrað gerðarmál gegn ríkjum hafa verið höfðuð á grundvelli samningsins, meðal annars vegna aðgerða sem ríki hafa gripið til vegna orkuskipta.“
Enginn annar alþjóðlegur viðskipta- eða fjárfestingarsamningur er sagður hafa orðið grundvöllur eins margra gerðarmála fyrirtækja gegn ríkjum.
Ráðuneytið segir jafnframt að þátttaka Íslands í samningnum hafi verið lítil sem engin frá upphafi.
„Ísland hefur ekki tekið virkan þátt í starfsemi hans og engar vísbendingar eru um að íslensk fyrirtæki hafi nýtt sér ákvæði samningsins, hvorki hvað varðar fjárfestavernd né úrlausn ágreiningsmála.“
Þá hafi hvorki íslensk stjórnvöld né fyrirtæki verið aðilar að gerðarmálum á grundvelli samningsins.
„Það er mat ráðuneytisins að samningurinn sé ekki í samræmi við áherslur Íslands í orku- og loftslagsmálum.“