Unnið að vegvísum til útfösunar á jarðefnaeldsneyti

Á vettvangi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna hefur lengi verið reynt að ná saman um áætlanir til að fasa út framleiðslu og notkun á jarðefnaeldsneyti, en án árangurs.

Fulltrúar um 60 ríkja tóku þátt alþjóðlegum fundi um útfösun jarðefnaeldsneytis.
Fulltrúar um 60 ríkja tóku þátt alþjóðlegum fundi um útfösun jarðefnaeldsneytis. Mynd/Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland tók þátt og kynnti reynslu af árangursríkum orkuskiptum á fyrsta alþjóðlega fundi „viljugra ríkja“ um útfösun jarðefnaeldsneytis sem fram fór í Santa Marta í Kólumbíu í lok apríl.

Niðurstaða fundarins var að setja á laggirnar þrjá vinnustrauma sem snúa að gerð vegvísa um útfösun, bæði framleiðslu og notkunar jarðefnaeldsneytis; fjármálum og stuðningi við ríki í orkuskiptum, auk viðskipta og grænna fjárfestinga, að því er fram kemur í samantekt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

„Einnig verður settur á laggirnar alþjóðlegur vísindahópur sem á að styðja við ákvarðanatöku,“ segir þar.

Markmiðið er sagt vera að vinnan styðji við áframhaldandi umræður um útfösun jarðefnaeldsneytis á vettvangi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.

„Kallað verður til annars fundar í þessum hópi viljugra ríkja á Tuvalu á fyrri hluta næsta árs, undir forystu heimamanna og Íra.“

Þá kemur fram að í ráðuneytinu sé nú unnið að mótun loftslagsstefnu fyrir Ísland, auk þess sem unnið sé að skilgreiningu á kolefnishlutleysi.

„Umræddir vegvísar að útfösun jarðefnaeldsneytis falla vel að þeirri vinnu og geta styrkt áframhaldandi stefnumótun Íslands á þessu sviði.“

Ráðuneytið segir að fundinn hafi alls sótt fulltrúar um 60 ríkja, en fulltrúi ráðuneytisins hafi setið fundinn fyrir hönd umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Fram kemur að á vettvangi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna hafi lengi verið reynt, án árangurs, að ná saman um áætlanir til að fasa út framleiðslu og notkun á jarðefnaeldsneyti.

„Í ljósi þess var ákveðið að kalla til þessa fundar í Kólumbíu að frumkvæði stjórnvalda þar og í Hollandi til að knýja málið áfram.“

Á fundinum kynnti fulltrúi Íslands reynsluna af jarðhitavæðingu til húshitunar hér, þar sem bæði ríki og sveitarfélög hafi leikið stórt hlutverk með skýrum markmiðum og styrkveitingum til jarðhitaleitar.

Hvatinn í þeirri vinnu hafi ekki síst verið orkukreppa á 7. og 8. áratugunum og að enn sé verið að styrkja jarðhitaleit á köldum svæðum.

„Einnig var komið inn á rafbílavæðingu, niðurfellingu vörugjalda á rafbíla, styrki og uppbyggingu hleðsluinnviða um allt land.“

Ráðuneytið segir að á fundinum hafi verið ræddar leiðir til að draga úr notkun og framleiðslu jarðefnaeldsneytis.

„En rekja má allt að 80% losunar gróðurhúsalofttegunda til jarðefnaeldsneytis.“

Sagt er ljóst að aðstæður ríkja séu mjög mismunandi og að umræður, sem fóru að mestu hafi farið fram í óformlegum hópum, hafi stuðlað að opinskárri umræðu um áskoranir og lausnir.

„Meðal helstu áskorana sem  voru nefndar var fjármögnun orkuskipta, réttlát umskipti fyrir starfsfólk í olíuiðnaði og hvernig styðja megi ríki sem vilja draga úr framleiðslu.“