Gullhúðun og tilefnisleysi í breytingum á reglugerð

Olíudreifing segir tillögurnar greinilega bera þess merki að þær séu ekki unnar á grundvelli þekkingar á rekstri birgðastöðva og að þau vinnubrögð séu ekki til fyrirmyndar og slæm breyting frá fyrri vinnubrögðum.

Grandi, Örfirisey, olíutankar, Olíkudreifing.
Tankar Olíudreifingar á Örfirisey í Reykjavík.

Fyrirhugaðar breytingar á reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi eru harðlega gagnrýndar í athugasemdum við þær í samráðsgátt stjórnvalda.

Í samráðsgáttinni segir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið að verið sé að gera skýrari kröfur sem gerðar eru til olíubirgðastöðva, svo sem varðandi þrýstiprófanir lagna og þykktarmælingu olíubirgðageyma.

Í berhögg við almenna skynsemi

„Annars vegar fjalla breytingarnar um aðlögun krafna að eðliseiginleikum biks og staðfesting á gullhúðun á kröfum um fráveitur frá bílaþvottastöðvum, sem ekki verður fjallað um hér,“ segir í umsögn Olíudreifingar.

Hins vegar veki „mikla furðu“ og gangi í „berhögg við almenna skynsemi og aðra stefnumótun ráðuneytisins“ breytingar sem boðaðar séu á kröfum til olíubirgðastöðva. Þá þykir félaginu afar miður að ekkert samráð hefi verið haft við þau félög sem viðkomandi breytingar snerti.

„Bera tillögurnar þess greinilega merki að þær eru ekki unnar á grundvelli þekkingar á rekstri birgðastöðva og eru þau vinnubrögð ekki til fyrirmyndar og slæm breyting frá fyrri vinnubrögðum.“

Sérstaklega eru gagnrýnd tilmæli um að ef geymir sé tekinn varanlega úr notkun skuli hann fjarlægður innan sex mánaða.

„Engin rök standa til þess að slík krafa sé gerð í þessari reglugerð, sem er reglugerð um mengunarvarnir.“

Bent er á að svo fremi sem rýmd sé í lekaþró fyrir geyminn hafi hann engin áhrif á virkni mengunarvarna stöðvarinnar. Og sé ásýnd hans slæm sé réttarheimildirnar til að taka á slíku í byggingarreglugerð.

Þá er vísað til þess að rekstrarumhverfi olíubirgðastöðva sé ófyrirsjáanlegt, bæði vegna áhrifa orkuskipta á þörf fyrir birgðir og svo vegna væntanlegra krafna um aukið birgðahald jarðefnaeldsneytis.

„Með þessari breytingu þyrfti að rífa geyma sem annars gætu nýst til að auka öryggi landsins og auðvelda orkuskipti, sem gengur þvert gegn stefnumótun stjórnvalda og heilbrigðrar skynsemi.“

Aukinheldur geri breytingatillagan ráð fyrir að Umhverfis- og orkustofnun hafi sjálfdæmi um hvernig hreinsa skuli mengaðan jarðveg.

„Slíkt stenst ekki. Um það gildir sérstök reglugerð og leiðbeiningar sem farið hefur verið eftir með góðum árangri.“

Olíudreifing gagnrýnir jafnframt að án nokkurs sjánlegs tilefnis sé krafa gerð tvöföldun á tíðni botnskoðana olíugeyma.

„Um afar kostnaðarsamar skoðanir er að ræða og hafa ekki verið færð nein rök í þessu máli fyrir því af hverju ætti að setja jafn íþyngjandi kröfu fram.“

Í umsögninni er minnt á að olíugeymar séu nú til dags í olíuheldum lekaþróm, sem ekki hafi verið tilfellið alls staðar þegar upphaflega var ákveðið að botnskoðun færi fram á tíu ára fresti.

Bent er á ákvæði stjórnsýslulaga um að yfirvöldum beri skylda til að setja ekki að nauðsynjalausu íþyngjandi kröfur.

Ruglað með starfsleyfi og skráningarskyldu

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur einnig skilað inn athugasemd við breytingarnar og snúa þær að að þeim hluta er varða bílaþvottastöðvar.

Þar er bent á að bílaþvottastöðvar, smurstöðvar og önnur sambærileg starfsemi sem þjónusti bifreiðar á einn eða annan hátt sé núna skráningarskyld.

„Hafa samþykkjendur skráningar engin áhöld eða heimildir til að breyta starfsskilyrðum fyrir skráningarskylda starfsemi og því villandi að nefna starfsleyfi þegar starfsemin er skráningarskyld eða styðjast við orðalag í reglugerðinni að hægt sé að geta á um aðra hluti í starfsleyfi þegar það er ekki hægt fyrir ofangreinda starfsemi.“

Þá er bent á ónákvæmni í orðalagi um endurbætur á bílaþvottastöðvum sem gæti dregið úr hvata til að ráðast í endurbætur á tækjum og búnaði til hagsbóta fyrir umhverfið.

Sendar voru beiðnir um umsagnir til ellefu stofnana og félagasamtaka, en frestur til að skila inn umsögn við fyrirhugaðar breytingar rennur út 6. maí næstkomandi.