Gerð hefur verið breyting á reglugerð um starfsemi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í því skyni að styðja betur við sveitarfélög vegna aðgengismála og efla þannig þjónustu við fatlað fólk um land allt.
Í tilkynningu innviðaráðuneytisins segir að breytingin feli í sér nýtt ákvæði sem heimili sveitarfélögum að sækja sérstaklega um framlög vegna uppsetningar á lyftum í eldra húsnæði.
„Með þessu móti er komið til móts við ákall frá sveitarfélögum og hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Bent hefur verið á að það geti bæði verið flókið og kostnaðarsamt að setja upp lyftur í eldra húsnæði,“ segir þar.
Tilgangurinn er einnig sagður að nýta betur fjármagn innan Jöfnunarsjóðs. Hingað til hafi umsóknir um lyftur fallið undir þriðju grein reglugerðarinnar, en verði nú flokkaðar sérstaklega.
„Með því skapast aukið svigrúm til að veita stuðning við önnur brýn aðgengisverkefni á grundvelli 3. greinar.“
Fram kemur að fyrstu umsóknir um framlag vegna lyfta hafi verið afgreiddar á fundi ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þann 10. apríl síðastliðinn.
Nýuppfærða reglugerð um starfsemi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga má skoða HÉR.