Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi fyrir að hafa ekki fylgt EES reglum um flutning milli EES ríkja á dýraafurðum sem eiga uppruna í þriðju ríkjum.
Fram kemur í tilkynningu ESA að samkvæmt íslenskum reglum sé ákveðnum dýraafurðum sem þegar hafi verið fluttar inn á EES svæðið gert að uppfylla viðbótarkröfur áður en þær megi koma til landsins, þrátt fyrir að þær hafi uppfyllt allar innflutningskröfur EES.
„Aukakröfur Íslands fela í sér að sækja þarf fyrir fram um viðbótarleyfi og færa sönnur fyrir því að ferskt eða hrátt kjöt hafi verið frosið í að minnsta kosti 30 daga áður en það kom til Íslands,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að ESA hafi komist á snoðir um íslensku reglurnar í apríl 2023 vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um að kjúklingakjöt með uppruna í Úkraínu væri flutt til Íslands frá Hollandi án þess að uppfylla fyrrnefndar viðbótarkröfur.
„Í kjölfarið tilkynnti ESA íslenska ríkinu að ESA hygðist opna rannsókn á íslensku reglunum um flutning milli EES-ríkja á dýraafurðum sem ættu uppruna sinn í þriðju ríkjum.“
Bent er á að EES-samningurinn hafi það að markmiði að tryggja sem best heilbrigði manna og öryggi neytenda, samhliða því að skapa sem mest svigrúm fyrir frjálst flæði vara.
Samræmt eftirlitskerfi vegna innflutnings frá öðrum ríkjum byggi á þeirri meginreglu að opinbert eftirlit skuli eiga sér stað í því EES-ríki þar sem varan kemur fyrst og áður en hún er markaðssett á innri markaðnum.
„Markmið og virkni þessa kerfis gæti raskast ef EES-ríkin hefðu heimild til að ganga lengra en reglurnar kveða á um, með því að setja eða viðhalda landsreglum umfram þær sem koma skýrt fram í hinu samræmda EES-regluverki.“
Að mati ESA eru kröfur Íslands um viðbótarleyfi og frystingu á fersku og hráu kjöti ósamrýmanlegar EES reglum, sem heimila ekki ríkjum að setja frekari skilyrði um dýraafurðir sem hafa verið löglega fluttar inn á innri markaðinn.
„Formlegt áminningarbréf er fyrsta skrefið í samningsbrotamáli gegn EES EFTA-ríki. Ísland hefur nú tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ESA ákveður hvort fara skuli með málið lengra.“
Ákvörðun ESA má lesa hér.