Drög að reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna á Íslandi eru nú komin til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.
Fram kemur í tilkynningu Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins að reglugerðin sé sett á grundvelli laga um náttúruvernd og miði að því að skapa samræmda aðferðafræði við kortlagningu víðerna, sem byggð sé á skýrum og hlutlægum viðmiðum.
„Með henni er leitast við að bæta samræmi í skilgreiningu og afmörkun víðerna, en hingað til hefur skortur á sameiginlegum forsendur leitt til mismunandi nálgana við kortlagningu,“ segir þar.

Haft er eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að með því að innleiða skýr og samræmd viðmið um kortlagningu óbyggðra víðerna sé verið að styrkja grunn náttúruverndar á Íslandi.
„Með samræmdri aðferðarfræði um óbyggð víðerni tryggjum við betri og ábyrgari ákvarðanatöku í skipulagi og nýtingu lands, undirbyggjum stefnumótun á faglegum grunni og treystum stöðu óraskaðra svæða þar sem náttúran fær að þróast án verulegra áhrifa mannsins,“ segir hann.
Fram kemur að í reglugerðardrögunum sé kveðið á um að afmörkun víðerna taki meðal annars mið af áhrifum mannvirkja og annarrar landnotkunar á lífríki, náttúrulega ferla og upplifun fólks.
Sérstök áhersla sé lögð á svokölluð skerðingarsvæði í kringum mannvirki, þar sem umfang þeirra fari eftir eðli og sýnileika mannvirkja í landslagi.
„Við mótun reglugerðarinnar var leitast við að finna jafnvægi þannig að hvorki væru sett of ströng né of rúm viðmið við afmörkun víðerna. Þá var meðal annars stuðst við faglega skýrslu um kortlagningu víðerna sem unnin var fyrir ráðuneytið.“
Reglugerðin gerir ráð fyrir að Náttúrufræðistofnun annist kortlagningu víðerna, haldi utan um gögn og birti kort opinberlega.
Þau muni svo nýtast stjórnvöldum við stefnumótun og ákvarðanatöku, meðal annars í skipulagsmálum, mati á umhverfisáhrifum og við verndun náttúru.
Umsagnarfrestur í samráðsgátt stjórnvalda er til 23. apríl.