Reglugerðarbreyting einfaldar fólki að hefja margvíslegan rekstur sem ekki þarf lengur starfsleyfi sem auglýsa þarf í fjórar vikur.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem léttir starfsleyfisskyldu af 16 flokkum atvinnurekstrar, með breytingum á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Í umfjöllun umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins kemur fram að breytingarnar feli í sér að einvörðungu sé gerð krafa um skráningu rekstrarins, í stað starfsleyfisskyldu áður.
„Meðal þeirra 16 flokka atvinnurekstrar sem nú teljast skráningaskyldir eru dýralæknastofur, gæludýraverslanir, heilsugæslustöðvar, heilsuræktarstöðvar, húðflúrstofur, íþróttahús og leiksvæði,“ segir þar.
Skráning er sögð fela í sér skráningu tiltekins atvinnurekstrar í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu og að Umhverfis- og orkustofnun hafi gefið út uppfærð samræmd starfsleyfisskilyrði.
„Skráning er ekki auglýst í fjórar vikur líkt og starfsleyfi og ekki er gefin út greinargerð fyrir skráningu. Skráning er ótímabundin en starfsleyfi er gefið út til tiltekins tíma.“
Tekið er fram að sé starfsemi hins vegar bæði starfsleyfisskyld og skráningarskyld þá vegi starfsleyfisskyldan þyngra en skráningin og aðeins þurfi að sækja um starfsleyfi.
Ráðuneytið segir svo enn frekari einföldun er í farvatninu að því er varði starfsleyfi sem veitt séu samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
„Í frumvarpi um breytt fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits, sem ráðherra hefur farið með fyrir ríkisstjórn, er meðal annars kveðið á um afnám auglýsingaskyldu vegna 104 tegunda atvinnustarfsemi svo fremi sem starfsemin falli ekki undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana.“
Í þessu felist að skilyrði um fjögurra vikna auglýsingu og umsagnatíma áður en starfsleyfi sé veitt falli brott.
„Mun þetta t.a.m. gilda um gististaði, baðstaði, verkstæði, heilsuræktarstöðvar, ýmsa iðnaðar- og landbúnaðarframleiðslu, skólahúsnæði og íþróttahús.“