Á að skoða innleiðingu nýs kerfis húsnæðislána

Starfshópur félags- og húsnæðismálaráðherra á að kortleggja nýlegar breytingar á lánaframboði og áhrif þeirra á neytendur og greina hvort, og þá hvernig, megi taka upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ásamt starfshópi um nýtt húsnæðismálakerfi.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ásamt starfshópi um nýtt húsnæðismálakerfi. Mynd/Stjr.is

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um nýtt húsnæðislánakerfi. Fram kemur í tilkynningu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins að hópurinn hafi hist á sínum fyrsta fundi í dag.

Haft er eftir ráðherra að skipun hópsins sé í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum.

„Nýlegar breytingar á lánamarkaði síðastliðna mánuði í tengslum við vaxtadómana svokölluðu hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara og gagnsærra húsnæðislánakerfi hér á landi til lengri tíma litið,“ segir Ragnar Þór.

Hann bætir við að um leið sé brýnt að greina til skemmri tíma hvort gera þurfi breytingar á núverandi lagaumgjörð fasteignalána til neytenda til að tryggja neytendavernd.

„Þetta eru mikilvæg verkefni sem stjórnvöld vilja ná vandlega utan um.“

Verkefni starfshópsins eru sögð vera að:

  • Kortleggja nýlegar breytingar á lánaframboði og áhrif þeirra á neytendur – og greina í kjölfarið hvort gera þurfi breytingar á löggjöf um fasteignalán til neytenda. Þetta er gert til að stuðla að því að staða lántaka sé ekki lakari en hún var fyrir áðurnefnda vaxtadóma.
  • Greina hvort og þá hvernig taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi með það fyrir augum að innleiða kerfi sem tryggi meira gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir neytendur. Erlendar fyrirmyndir verða hafðar til hliðsjónar og rýnt í kosti og galla annarra húsnæðislánakerfa, einkum í nágrannaríkjunum.

Formaður starfshópsins er Marinó G. Njálsson og í hópnum eiga sæti fulltrúar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ASÍ, BHM, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Hagsmunasamtökum heimilanna, Landssamtökum lífeyrissjóða, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Seðlabanka Íslands.

Þá kemur fram að með hópnum starfi sérfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.