Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent frá sér rökstutt álit þar sem óskað er eftir því að Ísland geri viðeigandi breytingar á miðlægri stafrænni upplýsinga- og þjónustumiðstöð sinni.
„Stafrænni upplýsinga- og þjónustumiðstöð er ætlað að gera einstaklingum og þjónustuveitendum kleift að veita þjónustu í öðrum EES-ríkjum. Þær nýtast í mörgum atvinnugeirum, þar á meðal í ferðaþjónustu og byggingastarfsemi sem og einstaklingum með lögvernduð starfsheiti,“ segir í tilkynningu ESA.
Tilgangur slíkrar miðstöðvar er sögð vara að gera þjónustuveitendum kleift að ljúka allri opinberri skráningu og viðurkenningu á starfsréttindum með rafrænum hætti á einni vefsíðu.
„Að mati ESA hefur Íslandi ekki tekist að koma á fót fullnægjandi opinberri þjónustumiðstöð fyrir landið en vefsíðan sem sögð er vera það (island.is) uppfyllir ekki kröfur EES-reglna, þar á meðal vegna þess að þar er ekki að finna nauðsynlegar upplýsingar fyrir þjónustuaðila frá öðrum EES-ríkjum.“
Skortur á slíkri vefsíðu er sagður þýða að notendur verði að fara í gegnum mikið efni á mismunandi vefsíðum reknum af ólíkum aðilum til að finna þær upplýsingar sem leitað sé eftir.
Fram kemur að ESA hafi opnað mál að eigin frumkvæði árið 2020. Í mars 2023 var Íslandi sent formlegt áminningarbréf þar sem meðal annars kom fram að með því að hafa ekki komið á fót vefsíðu sem þjónaði sem miðlæg stafræn upplýsinga- og þjónustumiðstöð hefði Ísland ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt EES-samningnum.
„Rétt er að taka fram að íslenska ríkið hefur náð ákveðnum framförum við að koma íslensku þjónustumiðstöðinni á laggirnar. Hins vegar vantar enn mikilvægar upplýsingar og uppbygging island.is er með þeim hætti að erlendum þjónustuveitendum er ekki ljóst að vefurinn sé íslenska þjónustumiðstöðin,“ segir í tilkynningu ESA.
Rökstutt álit er annað skrefið í formlegu brotaferli ESA. Íslensk stjórnvöld hafa nú tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og að því loknu getur ESA ákveðið hvort vísa eigi málinu til EFTA-dómstólsins.
Hægt er að lesa ákvörðun ESA hér.