Yfir 15 hundruð hjúkrunarrými tekin í gagnið fyrir lok árs 2030

Fram kemur hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu að í árslok 2025 hafi á landinu öllu verið 3.062 hjúkrunarrými en samkvæmt nýrri framkvæmdaáætlun verði þau orðin 4.417 árið 2030.

Inga Sæland kynnir áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila fram til ársloka 2030.
Inga Sæland kynnir áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila fram til ársloka 2030. Mynd/Stjr.is

Ný framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu gerir ráð fyrir mikilli fjölgun hjúkrunarrýma og viðsnúningi á biðlistum næstu árin. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra kynnti áætlunina í Ísafold, hjúkrunarheimili Hrafnistu í Garðabæ, í dag.

Við sama tækifæri undirrituðu ráðherra og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, samning um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri með allt að 100 hjúkrunarrýmum.

Fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins að gert sé ráð fyrir að nýja hjúkrunarheimilið opni árið 2029.

Helstu punktar í nýrri framkvæmdaáætlun að mati ráðuneytisins:

  • 1.507 hjúkrunarrými verða tekin í notkun fyrir lok árs 2030.
  • Af þeim verða ný hjúkrunarrými alls 1.355 talsins.
  • 90% af þeim hjúkrunarrýmum sem tekin verða í gagnið verða þannig hrein viðbót við hjúkrunarrýmin sem þegar eru til staðar út um landið.
  • 10% eru endurbætur á eldri rýmum – samtals 152 hjúkrunarrými.

Fram kemur að í árslok 2025 hafi á landinu öllu verið 3.062 hjúkrunarrými en samkvæmt framkvæmdaáætluninni verði þau orðin 4.417 árið 2030.

„Nýju rýmin skiptast þannig að á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir 897 nýjum rýmum, 146 nýjum rýmum á Norðurlandi, 140 á Suðurnesjum, 72 á Suðurlandi, 60 á Vesturlandi, 20 á Vestfjörðum og 10 á Austurlandi.“

Tekið er fram að um afar metnaðarfull markmið sé að ræða og áformin ýmsu háð, svo sem skipulagshraða í sveitarfélögum, hraða í útboðsferlum og uppbyggingarhraða.

„Gangi áformin eftir er gert ráð fyrir að árin 2029 og 2030 verði staðan orðin þannig að tæplega 100 einstaklingar verði í svokölluðum biðrýmum þaðan sem þeir fara áfram á hjúkrunarheimili og að fjöldi þeirra sem eru á biðlista og ekki í biðrýmum verði kominn niður í núll.“

Haft er eftir Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, að áætlunin sem hún hafi nú kynnt marki þáttaskil í þjóðarátaki ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarrýma.

„Ég hef lagt hug og hjarta í það að tryggja að fullorðna fólkið okkar fái notið allrar þjónustu og alúðar á efsta æviskeiðinu. Markmiðið er skýrt: Enginn á að þurfa að vera á biðlista og í óöryggi án umhyggju og þeirrar þjónustu sem okkur er skylt að veita,“ segir ráðherra í tilkynningunni.