Samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og staða mála í Mið-Austurlöndum voru efst á baugi á óformlegum utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins sem fram fór í Varsjá í gær.
Fram kemur í frétt utanríkisráðuneytisins að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi tekið þátt í fundinum.
Til umræðu hafi verið undirbúningur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagins sem fram fari í Ankara í júlí næstkomandi.
Þá hafi verið rætt mikilvægi þess að bandalagið vinni áfram að framkvæmd fyrirliggjandi ákvarðana um styrkingu sameiginlegra varna og að bandalagsríki auki framlög til málaflokksins í takt við ákvarðanir leiðtogafundarins í Haag í fyrra.
Haft er eftir Þorgerði Katrínu að öryggi í Eystrasaltinu, á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum sé samofið.
„Öryggis- og varnarhagsmunir aðildarríkja Eystrasaltsráðsins fara saman, við viljum standa vörð um alþjóðalög, erum einhuga um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu og mikilvægi þess að stríðinu ljúki með réttlátum og varanlegum friði,“ segir hún.
Þá hafi jafnframt átt sér stað umræða um þá stöðu sem uppi sé í Mið-Austurlöndum.

„Miklar áhyggjur eru af áframhaldandi stigmögnun átaka, afleiðingum þess á almenna borgara og áhrifum á öryggismál til skemmri og lengri tíma í Mið-Austurlöndum, sem og í öðrum heimshlutum,“ segir í færslu ráðuneytisins.
Ein segir að Þorgerður Katrín hafi líka átt fund með Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs.
„Þar var meðal annars núverandi staða alþjóðamála, samskiptin yfir Atlantsála og samvinna ríkjanna á vettvangi EES-samstarfsins til umræðu.“