Grafarvogur friðlýstur innan Gullinbrúar

Verndargildi Grafarvogs er sagt hátt og svæðið eitt af fáum í borginni þar sem enn finnist tiltölulega óraskaðar leirur. Leirur eru viðkomustaður farfugla, einkum vaðfugla, og fóstra ríkulegt fuglalíf árið um kring.

Auk ráðherra og borgarstjóra voru viðstödd friðlýsinguna fulltrúar og starfsfólk Reykjavíkurborgar, ráðuneytisins, Náttúruverndarstofnunar og Náttúrufræðistofnunar.
Auk ráðherra og borgarstjóra voru viðstödd friðlýsinguna fulltrúar og starfsfólk Reykjavíkurborgar, ráðuneytisins, Náttúruverndarstofnunar og Náttúrufræðistofnunar. Mynd/Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Grafarvogurinn hefur verið friðlýstur sem friðland og nær friðlýsingin til vogsins innan við Gullinbrú. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði friðlýsingu Grafarvogs í dag, að því er fram kemur í frétt ráðuneytisins.

Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Þórdís Arnljótsdóttir, fréttamaður RÚV, tekur viðtal við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Mynd/Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Friðlýsingin er sögð hafa verið unnin í samstarfi Reykjavíkurborgar og Náttúruverndarstofnunar, en hið friðlýsta svæði er 0,5 km² að stærð.

„Verndargildi Grafarvogs er hátt, en svæðið er eitt af fáum svæðum í borginni þar sem enn finnast tiltölulega óraskaðar leirur. Leirur eru viðkomustaður farfugla, einkum vaðfugla, og fóstra ríkulegt fuglalíf árið um kring. Vogurinn er þannig mikilvægur viðkomu- og fæðuöflunarstaður fyrir fjölda fuglategunda, en margar þeirra fuglategunda  sem nýta svæðið eru á válista eða í yfirvofandi hættu. Má þar m.a. nefna fýl, hvítmáf, sendling og svartbak,“ segir í frétt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Þar kemur jafnframt fram að á fartíma, bæði um vor og haust séu reglulega á leirum Grafarvogs stórir hópar af rauðbrystingi, sanderlu, lóuþræl, stelk, jaðrakan og sandlóu.

„Þá er Grafarvogurinn lykilsvæði fyrir heiðlóur á haustin er þær hópa sig þar fyrir brottför.“

Þá segir að Grafarvogur sé enn fremur vinsælt útivistarsvæði og friðlýsingunni líka ætlað að tryggja aðgengi almennings að svæðinu til náttúruupplifunar, fuglaskoðunar og fræðslu.

Grafarvogur
Mynd af vef Umhverfisverndarstofnunar þar sem búið er að fella inn mynd sem sýnir með rauðum hring friðlýst svæði Grafarvogs í Reykjavík. Mynd/Samsett