Stefnt er að stigbundinni aukningu á samræmdri faglegri nálgun við framkvæmd sjúkraflutninga á landinu öllu þrátt fyrir aðkomu mismunandi rekstraraðila.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu sem heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.
Þá stendur til að endurskoða gildandi reglugerð um framkvæmd og skipulag sjúkraflutninga, þannig að hún taki mið af þeim breytingum sem orðið
hafa við framkvæmd sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana.
„Áætlunin er unnin af vinnuhópi, skipuðum breiðum hópi hagaðila og fagfólki sem tengist málefnum sjúkraflutninga og bráðaþjónustu um allt land,“ segir í færslu ráðuneytisins.
Fram kemur að vinnuhópurinn hafi hafið störf síðasta haust.
„Í starfi sínu studdist hann við stefnu um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030 og heilbrigðisstefnu til ársins 2030.“
Markmið áætlunarinnar er sagt vera að efla gæði og öryggi bráðaþjónustu um allt land og leggja grunn að áframhaldandi þróun öflugrar, samræmdrar og sjúklingamiðaðrar bráðaþjónustu á Íslandi til framtíðar.
Umsagnarfrestur er til 4. mars næstkomandi, en finna má áætlunina í samráðsgátt stjórnvalda.