Utanríkisráðherra heldur til funda með ráðherrum í Japan

Um helgina sótti utanríkisráðherra öryggisráðstefnuna í Munchen.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ávarpar hádegisverðarfund um hækkun yfirborðs sjávar og áhrif á eyríki.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ávarpar hádegisverðarfund um hækkun yfirborðs sjávar og áhrif á eyríki. Mynd/Utanríkisráðuneytið

Eftir að hafa sótt um helgina öryggisráðstefnuna í Munchen heldur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra nú til Japan þar sem hún, meðal annars, fundar með utanríkisráðherra og utanríkisviðskiptaráðherra Japans.

Í samantekt utanríkisráðuneytisins kemur fram að á öryggisráðstefnunni í Munchen hafi samskipti Evrópu og Bandaríkjanna verið í brennidepli, líkt og í fyrra, ásamt öryggismálum á norðurslóðum, allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu og fleira til.

„Utanríkisráðherra tók þátt í nokkrum hringborðsumræðum, t.d. um konur, frið og öryggi, um öryggismál á norðurslóðum og um öryggismál á hafi,“ segir þar.

Andrii Sybiha‎, utanríkisráðherra Úkraínu og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Íslands.
Andrii Sybiha‎, utanríkisráðherra Úkraínu og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Íslands. Mynd/Utanríkisráðuneytið

Þá hafi Þorgerður Katrín sótt fund varnarmálaráðherra JEF-ríkjanna svokölluðu, sem og fund utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) með Andrii Sybhiha, utanríkisráðherra Úkraínu.

„Þá ávarpaði hún hádegisverðarfund um hækkun yfirborðs sjávar og áhrif á eyríki; og flutti opnunarávarp og sat í pallborði á fundi um stækkunarmál Evrópusambandsins.“

Þá ávarpaði Þorgerður Katrín og sat í pallborði með utanríkisráðherrum Póllands og Noregs á fundi um öryggismál í Eystrasaltinu og víðar, auk þess að eiga átti nokkra tvíhliða fundi.

Þeir voru meðal annars með David McGuinty, varnarmálaráðherra Kanada, Wopke Hoekstra, loftslagsstjóra Evrópusambandsins, Helen McEntee, utanríkis- og varnarmálaráðherra Írlands, Ervin Ibrahimović, utanríkisráðherra Svartfjallalands, Allison Hooker, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna í pólitískum málefnum, og Boris Ruge, skrifstofustjóra öryggispólitískra málefna hjá Atlantshafsbandalaginu.

Fram kemur að þetta hafi verið í annað skipti sem Þorgerður Katrín sótti öryggisráðstefnuna í Munchen sem utanríkisráðherra.

„Það skiptir gríðarlega miklu máli að taka þátt í umræðum hér í Munchen um málefni sem snerta mjög hagsmuni okkar Íslendinga og Evrópu allrar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Hún segir að á ráðstefnunni hafi gefist gott tækifæri til að taka þátt í skoðanaskiptum um þær áskoranir sem við blasi, meta hvert vindar blási og efla tengslanet Íslands.

„En slík ræktun samskipta skiptir svo miklu máli,“ segir hún.