Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur gefið út uppfærðar fjárhæðir tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða fyrir árið 2026.
Fram kemur í færslu ráðuneytisins að tekju- og eignamörk séu sett til að tryggja að félagslegar leiguíbúðir nýtist þeim sem hafa mesta þörf fyrir húsnæðisúrræðið.
Horft er til eftirfarandi marka við mat á því hvort fólk falli innan gildandi skilyrða gilda um mörk vegna tekna og eigna:
- Árstekjur einstaklings: 7.874.000 kr.
- Árstekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu: 1.969.000 kr.
- Árstekjur fyrir hjón og sambúðarfólk: 11.025.000 kr.
- Eignamörk: 8.499.000 kr.
„Uppreiknuð tekju- og eignamörk tóku gildi þann 1. janúar síðastliðinn,“ segir í færslunni.
Þá segir að um sé að ræða tekju- og eignamörk leigjenda félagslegra leiguíbúða sem fjármagnaðar hafi verið fyrir 10. júní 2016 með lánum frá Íbúðalánasjóði á grundvelli þágildandi laga um húsnæðismál.
„Þann dag tók við nýtt fyrirkomulag fjármögnunar slíkra íbúða með stofnframlögum á grundvelli laga um almennar íbúðir.“