Sex látnir fara í breytingum á skipulagi ráðuneytis

Þverfagleg samvinna verður verkefnamiðuð en ekki grundvallarform skipurits mennta- og barnamálaráðuneytisins eftir breytingar sem þar er verið að innleiða.

Borgartún 33 í Reykjavík þar sem ráðuneyti mennta og barnamála er til húsa.
Borgartún 33 í Reykjavík þar sem ráðuneyti mennta og barnamála er til húsa. Mynd/Mennta- og barnamálaráðuneytið

Mennta- og barnamálaráðherra hefur innleitt nýtt skipurit og verklag í kjölfar mats á hlutverki og verkefnum ráðuneytisins.

Í færslu ráðuneytisins kemur fram að markmið breytinganna sé að styrkja faglega stjórnsýslu, skýra ábyrgð og umboð, bæta ákvarðanatöku og tryggja að ráðuneytið sé enn betur í stakk búið til að sinna lögbundnu hlutverki sínu á sviði mennta- og barnamála.

„Breytingarnar fela í sér endurskipulagningu skrifstofa og breytta verkaskiptingu. Með þeim á að skýra ábyrgð og auka gagnsæi um leið.“

Draga á úr yfirbyggingu um leið og fagleg sérþekking og sérhæfing innan málaflokka verði styrkt.

„Áfram verður vel stutt við samhæfingu barna- og menntamála,“ segir í færslunni.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra.

Haft er eftir Ingu Sæland, nýjum mennta- og barnamálaráðherra, að með breytingunum sé stefnt að því að einfalda verklag og gera það skilvirkara.

„Við viljum lyfta upp menntamálum og setja aukinn slagkraft í málefni barna í viðkvæmri stöðu. Það er mikilvægt að nýta þá miklu sérþekkingu sem til staðar er í ráðuneytinu og stytta boðleiðir sem ég tel að nýtt skipurit muni gera. Ætlunin er að sigla umbótum hratt og vel í höfn, barnanna vegna,“ segir hún.

Þá segir að með nýju skipulagi sé megináhersla lögð á fagskrifstofur sem beri heildstæða ábyrgð á stefnumótun, greiningu, lagavinnu, innleiðingu, mati og eftirfylgni innan síns málaflokks.

Þær eru sagðar þrjár talsins með tveimur stoðskrifstofum þeim til stuðnings:

Í þessum breytingum hefur skrifstofa ráðuneytisstjóra verið lögð niður, að því er fram kemur í færslu ráðuneytisins.

Markmiðið með því er sagt að draga úr yfirbyggingu um leið og fagleg og framkvæmdaleg ábyrgð sé færð nær málaflokkunum sjálfum.

„Um leið er ætlunin að styrkja hlutverk ráðuneytisstjóra sem yfirstjórnanda, samhæfingar- og ábyrgðaraðila. Jafnframt verði sérstök teymi, fimm talsins, teymisstjórar og teymisstjórnir lögð niður.“

Þá segir að þótt horfið sé frá þverfaglegu skipuriti sé ekki verið að víkja frá markmiðum um samstarf og samþættingu sem sé afar mikilvægt þegar komi að menntamálum og farsæld barna.

„Samhliða nýju skipulagi verður innleitt vinnufyrirkomulag sem byggir á sprettum.“

Þar vinni starfsfólk úr ólíkum fagskrifstofum saman að afmörkuðum verkefnum með áherslu er lögð á lausnamiðaða nálgun, hraða endurgjöf og skýr markmið.

„Þverfagleg samvinna verður því verkefnamiðuð en ekki grundvallarform skipuritsins.“

Breytingarnar eru óhjákvæmilega sagðar leiða til þess að ákveðin störf leggist niður og fram kemur að sex starfsmönnum hafi verið sagt upp vegna þeirra.

„Um leið er mætt þeirri hagræðingarkröfu sem gerð er á árinu 2026 til rekstrar ráðuneytisins.“

Breytingarnar eru sagðar taka gildi nú þegar.

Eftirfarandi hafi verið fluttir í embætti skrifstofustjóra á nýjum skrifstofum:

  • Skrifstofustjóri fjármála og innri þjónustu er Ásgeir Runólfsson sem var áður skrifstofustjóri fjárlaga og rekstrar í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Hafþór Einarsson sem var skrifstofustjóri fjármála og rekstrar í mennta- og barnamálaráðuneytinu verður skrifstofustjóri fjárlaga og rekstrar í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
  • Skrifstofustjóri stjórnsýslu er Anna Tryggvadóttir sem var skrifstofustjóri stjórnsýslu, mats og eftirlits.
  • Skrifstofustjóri barnamála er Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir sem áður var skrifstofustjóri stefnumótunar og innleiðingar.
  • Auglýst verður eftir skrifstofustjóra leikskóla, grunnskóla og íþróttamála á næstu dögum. Björk Óttarsdóttir mun leiða starf skrifstofunnar þar til skrifstofustjóri hefur verið skipaður.
  • Auglýst verður eftir skrifstofustjóra framhaldsskóla og framhaldsfræðslu á næstu dögum. Ragnhildur Bolladóttir mun leiða starf skrifstofunnar þar til skrifstofustjóri hefur verið skipaður.