Ljósvist í fyrsta sinn skilgreind í reglugerð

Síðasta reglugerðin sem Inga Sæland skrifaði undir sem félags- og húsnæðismálaráðherra var vegna breytinga á byggingarreglugerð.

Sólarglæta á milli stórbygginga.
Sólarglenna á milli blokka. Mynd/Gandosh Ganbaatar á Unsplash

Ljósvist hefur nú í fyrsta sinn verið skilgreind í byggingarreglugerð, auk þess sem fjallað er ítarlega um kröfur sem henni tengjast og sett fram skýr markmið. 

Í færslu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins segir að ljósvist sé samansafn ýmissa þátta sem snúa að lýsingu, svo sem dagsljósi og raflýsingu, sem saman lýsi sjónskilyrðum og þeirri upplifun sem rýmið veitir. 

„Þetta er í fyrsta sinn sem heildstæð umfjöllun um ljósvist er innleidd í byggingarreglugerð,“ segir þar.

Fram kemur að skrifað hafi verið undir breytingarnar á reglugerðinni síðastliðinn föstudag, en þetta hafi verið síðasta reglugerðin sem Inga Sæland undirritaði sem félags- og húsnæðismálaráðherra.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland, fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra.

Helstu nýjungar í reglugerðinni:

  • Gæta skal að því að byggingar og önnur mannvirki hafi eðlileg tengsl við útivistarsvæði á lóð og staðsetning vistarvera taki mið af dagsbirtu og útsýni þannig að góðrar ljósvistar gæti í vistarverum. 
  • Mannvirki verði hönnuð og byggð þannig að tekið sé tillit til þarfa allra aldurshópa vegna ljósvistar og að hún sé í fullu samræmi við þá starfsemi sem fer fram við eða innan mannvirkis.Skýrar kröfur eru gerðar varðandi raflýsingu, daglýsingu í vistarverum, útsýni í vistarverum og að komið sé í veg fyrir ljósmengun. 

„Markmiðum og kröfum í reglugerðinni er fylgt eftir með umfangsmiklum tæknileiðbeiningum sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur unnið að í samvinnu við hagaðila síðustu mánuði.“

Þannig er reglugerðin sögð innihalda rammann, en tæknileiðbeiningarnar hina tæknilegu útfærslu – sem séu nýmæli.

Forsaga málsins

Rifjað er upp í færslu ráðuneytisins að vorið 2022 hafi komið fram gagnrýni á að skýrari reglur um ljósvist skorti í byggingarreglugerð hér á landi. 

Sama sumar hafi HMS haldið opinn fund um mikilvægi ljósvistar. Í kjölfarið hafi svo tekið til starfa samráðshópur um breytingarnar.  

„Reglugerðarbreytingin er afrakstur af vinnu hópsins og jafnframt hluti af heildarendurskoðun á byggingarreglugerð sem nú stendur yfir. “