Umfangsminni ríkisaðstoð þarf nú að skrá hjá ESB

Fram til þessa hefur aðildarríkjum EES og ESB ekki verið skylt að skrá veitta minniháttaraðstoð á sviði ríkisaðstoðar.

Íslenskur lögeyrir, klink og seðlar. Peningar.
Peningar. Mynd/Seðlabanki Íslands (breytt)

Innleiddar hafa verið nýjar reglur um minniháttaraðstoð (De minimis aid) á sviði ríkisaðstoðar. Í færslu atvinnuvegaráðuneytisins segir að við bætist skráningarskylda, auk þess sem fjárhæðir hafi verið hækkaðar.

„Minniháttaraðstoð felur í sér að unnt er að veita fyrirtækjum, að uppfylltum skilyrðum, ríkisstyrki án þess að fara í gegnum formlegt tilkynningarferli til Eftirlitsstofnunar EFTA,“ segir í umfjöllun ráðuneytisins.

Fram til þessa hafi aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og Evrópusambandsins ekki verið skylt að skrá veitta minniháttaraðstoð, en á því hafi nú verið gerð breyting.

Helstu breytingar eru sagðar vera:

Hækkun hámarksfjárhæða minniháttaraðstoðar

  • Almenn minniháttaraðstoð hækkar úr 200.000 evrum í 300.000 evrur á þriggja ára tímabili. (Eða úr um 29,4 milljónum króna í 44,1 milljón króna.)
  • Minniháttaraðstoð vegna þjónustu sem hefur almenna efnahagslega þýðingu hækkar úr 500.000 evrum (73,5 milljónum króna) í 750.000 evrur (110,3 milljónir króna).

Skráningarskylda frá og með áramótum

  • Öll minniháttaraðstoð sem veitt er á Íslandi, hvort sem hún fellur undir almennar reglurnar eða reglur um þjónustu með almenna efnahagslega þýðingu, skal skráð í miðlæga skrá framkvæmdastjórnar ESB.

Uppsöfnun heimiluð

  • Heimilt verður að veita styrki samkvæmt báðum reglunum samtímis, að hámarki 1.050.000 evrur (154,4 milljónir króna).
  • Styrkveitendur skulu sjá um skráningu. Atvinnuvegaráðuneytið mun halda utan um skráningar og veita upplýsingar eftir þörfum.

Frekari upplýsingar um minniháttaraðstoð er að finna í reglugerð framkvæmdastjórnar ESB og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um aðstoð til fyrirtækja sem veiti þjónustu sem hafi almenna, efnahagslega þýðingu.