Verðmæt og viðkvæm svæði undanskilin vindorkunýtingu

Lagt er til að vindorka lúti að meginstefnu sömu lögmálum og aðrir orkukostir í rammaáætlun en þó með mikilvægum undantekningum sem leiða af sérstöku eðli vindorkunnar.

Vindmyllur í vindorkugarði.
Vindmyllur í vindorkugarði. Mynd/Luo Lei á Unsplash

Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun um vindorku og verndarflokk hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda.

Frumvarpinu er sagt ætlað að tryggja vernd náttúruverðmæta og landslagsheilda, lögbinda forræði nærsamfélags þegar kemur að vindorkunýtingu en jafnframt að liðka fyrir uppbyggingu sem falli að byggðasjónarmiðum og styðji við raforkuöryggi og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

„Lagt er til að vindorka lúti að meginstefnu sömu lögmálum og aðrir orkukostir í rammaáætlun en þó með mikilvægum undantekningum sem leiða af sérstöku eðli vindorkunnar,“ segir í færslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um málið.

Þannig verði verðmæt og viðkvæm svæði á Íslandi undanskilin frá vindorkunýtingu. Er þar meðal annars vísað til friðlýstra svæða, svæða sem njóti sérstakrar verndar og miðhálendis Íslands.

„Þá verði sveitarfélögum veitt eiginlegt neitunarvald gagnvart vindorkuáformum, þ.e. með undanþágu frá þeirri almennu reglu að flokkun svæða sé bindandi gagnvart skipulagi sveitarfélaga.“

Í frumvarpsdrögunum er jafnframt mælt fyrir um þætti sem verkefnisstjórn eigi að líta sérstaklega til við mat á vindorkukostum, meðal annars um áhrif á fuglalíf og verndargildi nálægra friðlýstra svæða, um raforkuöryggi og atvinnuuppbyggingu í viðkvæmum byggðum og samlegð vindorkukosta við uppbyggingu flutningskerfis raforku.

„Í sama frumvarpi er mælt fyrir um almennar breytingar á réttaráhrifum flokkunar í verndarflokk rammaáætlunar. Þær breytingar miða að því að náttúruverðmæti sem fjallað hefur verið um á vettvangi rammaáætlunar séu vernduð samkvæmt viðeigandi friðlýsingarflokkum í náttúruverndarlögum frekar en að svæði séu einvörðungu friðlýst gegn orkuvinnslu.“

Vakin er athygli á því að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í Samráðsgátt stjórnvalda sé til 19. janúar næstkomandi.