Langtímasamningur gerður við Lýðskólann á Flateyri

Lög um lýðskóla voru sett árið 2019 til að stuðla að starfrækslu lýðskóla á Íslandi.

Kennsluhúsnæði Lýðskólans á Flateyri við Hafnarstræti 11.
Kennsla Lýðskólans á Flateyri fer fram á annarri hæð gamla kaupfélagshússins við Hafnarstræti 11. Mynd/Google Earth

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ákveðið að gera langtímasamning við Lýðskólann á Flateyri.

Í umfjöllun á vef ráðuneytisins segir að skólasókn hafi verið góð og námið við skólann gefið góða raun.

„Í Lýðskólanum á Flateyri fer fram mikilvægt starf til að valdefla nemendur og auka trú þeirra á eigin getu,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

Guðmundur Ingi Kristinsson
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

Fram kemur að Guðmundur Ingi hafi heimsótt skólann við skólasetningu í haust ásamt Höllu Tómasdóttur forseta Íslands. 

„Skólinn eykur fjölbreytni í menntakerfinu og námsframboð með áherslu á verklegt og upplifunarnám. Samningurinn er gerður til þriggja ára,“ segir í umfjölluninni.

Bent er á að lög um lýðskóla hafi verið sett á Alþingi árið 2019 til að stuðla að starfrækslu lýðskóla á Íslandi.

Lýðskólar eru sagðir skólar sem hafi að markmiði að veita almenna menntun og uppfræðslu og undirbúa nemendur fyrir þátttöku í lýðræðissamfélagi.

„Lögin festu í sessi faglega umgjörð um starfsemi slíkra skóla hér á landi en fram að því hafði engin löggjöf gilt um þá.“

Lýðskólar eru fyrir nemendur 18 ára og eldri, en frekari upplýsingar um starfsemina og kennsluhætti má finna á vef Lýðskólans.