Auka má skilvirkni og ná fram aukinni hagræðingu með með því að efla samræmda stafræna þjónustu opinberra aðila við almenning. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu KPMG á stafrænu samstarfi hins opinbera.
Skýrsla KPMG er unnin að beiðni Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd allra sveitarfélaga, en í henni er fjallað er um kostnað og hagræðingartækifæri í rekstri og þróun stafrænna innviða hjá hinu opinbera.
Dreifing verkefna og ábyrgðar leiðir til sóunar
„Niðurstöður skýrslunnar sýna að veruleg tækifæri felast í að efla samstarf ríkis og sveitarfélaga,“ segir í umfjöllun á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Skýrslan er sögð leiða í ljós að dreifing verkefna og ábyrgðar komi fram í sóun og tefji framþróun.
„Til að nýta fjármagn og þekkingu enn betur þarf að hugsa stafræna vegferð hins opinbera heildstætt, samþætta kerfi og brjóta niður hindranir milli stofnana og stjórnsýslustiga.“
Samræmdar reglur um bókhald skortir
Með sameiginlegri sýn, aukinni áherslu á notendaupplifun og samræmdar lausnir verði til tækifæri til að bæta þjónustu, draga úr tvíverknaði og ná stærðarhagkvæmni.
„Áætlað er að hið opinbera hafi varið að minnsta kosti 42,6 milljörðum króna árið 2024 í rekstur og þróun upplýsingatækniinnviða. Talan er þó varlega áætluð þar sem skortur er á samræmdum reglum um bókhald og skráningu kostnaðar.“
Haft er eftir Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, að horfa verði á stafræna þróun sem sameiginlegt verkefni allra opinberra aðila.
„Það þýðir betri yfirsýn á verkefnum, betri þjónusta við íbúa og síðast en ekki síst mun betri nýting fjármagns. Fyrir íbúa skiptir ekki máli hvort sveitarfélag eða ríki er að veita þjónustuna, hún þarf bara að virka og vera aðgengileg,“ segir hann.
Eistar og Danir meðal þeirra sem best standa
Í skýrslunni kemur fram að samanburðarlönd Íslands nálgist stafræna stjórnsýslu með ólíkum hætti. Sum geri það með dreifstýringu, en önnur í nánu samstarfi ríkis og sveitarfélaga.
„Lönd sem ná bestum árangri í stafrænni umbreytingu hafa skýra stefnu þvert á stjórnsýsluna, samræmda innviði og formlegt samstarf á milli ríkis og sveitarfélaga.“
Þau lönd sem náð hafi mestum árangri, líkt og Eistland og Danmörk, sameini skýra stefnu, samræmda innviði og formlegt samstarf ríkis og sveitarfélaga.