Verulegar breytingar eru lagðar til á greiðslum til handhafa forsetavalds í breytingum sem lagðar eru til á lögum um laun forseta Íslands. Greiðslur til þeirra færu úr um tíu milljónum króna á ári í þrjú hundruð þúsund krónur.
Þá er lagt til að forseti Íslands geti ráðið sér aðstoðarmann og skýrari umgjörð sett um launakjör og verksvið forsetaritara.
Lagafrumvarp með þessum breytingum er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og frestur til að skila umsögn til 23. þessa mánaðar.
„Lagðar eru til breytingar á handhafalaunum, ákvæði um forsetaritara, heimild til ráðningar sérstaks aðstoðarmanns forseta og áréttuð heimild forsætisráðherra til að setja reglur um tiltekin atriði,“ segir í samráðsgáttinni.
Breytingar á greiðslum til handhafa forsetavalds eru sagðar gerðar með hliðsjón af góðum almennum starfskjörum þeirra, sem og embættisskyldum þeirra umræddra embættismanna. Handhafarnir eru þrír, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar.
Þessir embættismenn fara með forsetavald um stundarsakir þegar forseti getur ekki gegnt störfum um sinn, svo sem vegna dvalar erlendis, og fá samkvæmt gildandi lögum þriðjung forsetalauna hver í hlutfalli við þann dagafjölda sem forseti er erlendis.
Fram kemur að kostnaður undanfarinna ára hafi að meðaltali verið um tíu milljónir króna á ári.
Greiðsla hvers fer úr rúmum 3 milljónum í 100 þúsund krónur
„Hér er hins vegar lagt til að þóknun til handhafa forsetavalds verði föst upphæð, eða kr. 300.000 samanlagt á ári, óháð fjölda daga sem forseti er erlendis eða getur ekki gegnt störfum sínum af öðrum ástæðum.“
Verði af breytingunni munu árlegar greiðslur til hvers handhafa lækka úr rúmlega þremur milljónur króna í hundrað þúsund krónur.
„Sú lækkun sem hér er lögð til er veruleg og leiðir til þess að handhafagreiðslur verði fremur táknrænar en tengdar við vinnuframlag.“
Ákvæði um forsetaritara samræmd við ráðuneytisstjóra
Þá kemur fram að ekki gildi sérstök ákvæði í lögum um embætti forsetaritara.
„Starf forsetaritara er um margt sérstakt og þess eðlis að það á sér ekki beina hliðstæðu innan stjórnkerfisins. Full ástæða er til að staða og verksvið forsetaritara sé afmarkað í lögum, enda gegnir forsetaritari mikilvægu og ábyrgðarmiklu embætti.“
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að kveðið verði á um hlutverk og skipunartíma forsetaritara, til samræmis við núverandi stöðu og þróun embættisins á undanförnum árartugum.
„Þá er lagt til að laun forsetaritara verði ákvörðuð í lögum með fastri krónutölufjárhæð sem og hver sé þar af föst krónutölufjárhæð fyrir álag og yfirvinnu sem starfinu fylgir. Launin verði síðan endurákvörðuð 1. júlí ár hvert miðað við hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins.“
Fyrirkomulagið er sagt það sama og gildi um laun ráðuneytisstjóra, dómara og fleiri embættismanna.
Forseti fái að ráða sér sérsakan aðstoðarmann
Þá felur frumvarpið í sér að heimilt verði að ráða til starfa við forsetaembættið sérstakan aðstoðarmann sem ekki yrði ráðinn þangað sem almennur sérfræðingur.

„Starfið yrði ekki auglýsingaskylt og því lyki ekki síðar en þegar viðkomandi forseti léti af embætti. Þau frávik frá almennum reglum um opinbera starfsmenn sem í þessu felast grundvallast á sambærilegum sjónarmiðum og við eiga um aðstoðarmenn ráðherra og ríkisstjórnar.“
Fram kemur að af hlutverki forseta leiði að sá einstaklingur sem embættinu gegni hafi umtalsvert svigrúm til að stýra áherslum og verkefnum í embættistíð sinni, innan marka stjórnarskrár og laga.
„Æskilegt má því telja að forseti hafi heimild til að velja sér til ráðgjafar sérstakan aðstoðarmann sem hafi þá hæfileika og reynslu sem henti og njóti að auki fyllsta persónulegs trausts forseta.“
Skerpt á samhæfingarhlutverki forsætisráðherra
Þá segir að forsætisráðherra er forystumaður Stjórnarráðsins og ríkisstjórnarinnar á grundvelli þeirra heimilda til skipunar ráðherra og verkstjórnar ríkisstjórnar sem honum séu veittar í stjórnarskránni, með atbeina forseta. Samhæfingarhlutverk forsætisráðherra leiði af stöðu hans sem forystumanns ríkisstjórnarinnar.
„Í frumvarpinu er lagt til að framangreint forystu- og samhæfingarhlutverk forsætisráðherra þvert á málefnasvið ráðuneyta verði áréttað í tilteknum atriðum.“
Tillögur frumvarpsins eru þó hvorki sagðar fela í sér auknar heimildir forsætisráðherra, né heldur tæmandi talningu þeirra.
Markmiðið sé einkum að skapa skýrari forsendur fyrir samhæfingu, á grundvelli gildandi laga og að höfðu samráði við hlutaðeigandi stjórnvöld á viðkomandi málefnasviðum.
„Sérstaklega er horft til öryggismála æðstu stjórnar, staðgöngu ráðherra og rafrænna undirritana.“