Framkvæmdastjóri NATO kemur til Íslands í lok mánaðar

Heimsókn Mark Rutte til Íslands í lok mánaðar er sú fyrsta sem hann á í stöðu framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.

Kristrún Frostadóttir og Mark Rutte.
Frá fundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í maí síðastliðnum. Mynd/Stjórnarráðið

Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), er væntanlegur í vinnuheimsókn til Íslands 27. nóvember næstkomandi.

Í sameiginlegri frétt utanríkis- og forsætisráðuneytis kemur fram að um sé að ræða fyrstu heimsókn Mark Rutte til Íslands í stöðu framkvæmdastjóra NATO. Hann tók við af Jens Stoltenberg í október 2024.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Mark Rutte.
Frá fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og framkvæmdastjóra NATO í Brussel í janúar síðastliðnum. Mynd/Utanríkisráðuneytið

„Í heimsókninni mun Rutte kynna sér aðstæður og starfsemi á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, þar sem hann mun eiga fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra,“ segir þar.

Að því loknum fundi sínum með utanríkisráðherra heldur Rutte til Reykjavíkur þar þar sem hann kemur til með að eiga fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.

„Þá lýkur dagskrá Rutte á heimsókn á Alþingi þar sem forseti þingsins, Þórunn Sveinbjarnardóttir tekur á móti honum, og hvar framkvæmdastjórinn mun funda með utanríkismálanefnd og Íslandsdeild NATO-þingsins.“