Frá því er greint í nýjasta þætti í hlaðvarpsins Komið gott að Róbert Marshall sé hættur í starfi sínu sem aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra Reykjavíkur. Róbert var sá þriðji til að gegna þessu starfi frá því Heiða Björg tók við sem borgarstjóri í febrúar síðastliðnum.
Í þættinum gantast þáttastjórnendur með að Róbert hafi ekki sést í ráðhúsinu eftir blaðamannafund um húsnæðisuppbyggingu í Úlfarsárdal þar sem borgarstjóri virtist hafa gleymt að taka niður sólgleraugu á fundinum.
Þá hafa þáttastjórnendur eftir heimildum sínum að fjórði aðstoðarmaðurinn á tímabilinu sé þegar hlaupinn undir bagga með borgarstjóra.
Uppfært: Algert kjaftæði – bara á leið í frí
Í frétt á Vísi segir Róbert Marshall það vera „algert kjaftæði“ að hann sé hættur sem aðstoðarmaður borgarstjóra, líkt og ýjað hafi verið að í þætti Komið gott.
Í samtali við Vísi segist hann þó vissulega vera á leið í mánaðarlangt, launalaust leyfi á laugardaginn, en að því sé fjarri að hann sé að hætta. Þetta leyfi hafi legið fyrir áður en hann var ráðinn sem aðstoðarmaður Heiðu Bjargar í byrjun september.