Verkefni Ofanflóðanefndar til 2030 metin á 24 milljarða

Skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um starfsemi Ofanflóðanefndar er sú sjöunda í röðinni frá því hún hóf störf 1996.

Skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 2024
Skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 2024.

Heildarumfang verkefna Ofanflóðanefndar frá stofnun og til ársins 2030 nemur um 74 milljörðum króna. Þar af nemur kostnaður við verkefni í pípunum um 24 milljörðum.

Þetta má lesa úr inngangsorðum Elíasar Péturssonar, formanns Ofanflóðanefndar við nýja skýrslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um starfsemi nefndarinnar 2024.

Í skýrslunni er að finna yfirlit um verkefni nefndarinnar á tímabilinu, fyrirliggjandi verkefni, rekstur málaflokksins og ýmsan fróðleik sem tengist vörnum gegn ofanflóðum.

Skýrslan er sú sjöunda í röðinni um starfsemi nefndarinnar frá því hún hóf störf í ársbyrjun 1996.

Umfangsmikil og fjölbreytt verkefni

Í inngangi sínum rekur formaður nefndarinnar hvernig nefndin hafi frá stofnun og í umboði ráðherra gegnt lykilhlutverki við að tryggja öryggi byggðalaga þar sem við sé að glíma ógnir vegna ofanflóða.

„Verkefnin hafa því verið bæði umfangsmikil og fjölbreytt – allt frá hættumati og áætlanagerð til aðkomu að uppbyggingu nýrra varnarvirkja, auk uppkaupa á eignum á hættusvæðum,“ segir hann.

Fram kemur að framkvæmdir við varnir hafi nú farið fram á alls tólf þéttbýlisstöðum á landinu, auk þess sem uppkaup eigna hafi átt sér stað á þrettán stöðum. Heildarkostnaður við varnarvirki og uppkaup nemi nú yfir 40 milljörðum króna.

„Verkefni í undirbúningi eða framkvæmd, svo sem á Flateyri, Patreksfirði, Seyðisfirði og í Neskaupstað eru áætluð um 20 milljarðar króna.“

Áætlaðar endurbætur á eldri mannvirkjum sé svo metnar á tæplega tíu milljarða og kostnaður við hættumat og önnur verkefni á tímabilinu 2024–2030 sé um fjórir milljarða króna.

Samtals eru þetta 74 milljarðar króna sem endurspegla umfang verkefna nefndarinnar frá stofnun og fram til ársins 2030.

Í inngangsorðum sínum segir Elías ljóst að verkefni sem tengist ofanflóðavörnum séu ekki aðeins tæknileg, heldur snúist þau í grunninn um samfélagslega ábyrgð á að vernda líf fólks og lífsgæði og tryggja með því framtíð byggðar í landinu.

Í þessari vinnu segir hann hafa verið náið samstarf við sveitarfélög, Veðurstofuna, Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir, hönnuði og verktaka.

„Það samstarf hefur bæði verið traust og árangursríkt,“ segir Elías.

Um leið fagnar hann vinnu sem hafin sé í ráðuneytinu við stefnumótun um náttúruvá.

Ágrip af verkefnum 2024

Í skýrslunni segir að mörg verkefni hafi verið í vinnslu 2024. Til dæmis hafi ráðherra um miðjan maí staðfest hættumat fyrir Stöðvarfjörð,
sem sé síðasti þéttbýlisstaðurinn þar sem liggi fyrir að þörf sé á hættumati vegna ofanflóða.

Þá segir að verkefni um endurskoðun hættumats þar sem reist hafi verið varnarvirki ásamt tengdum verkefnum hafi verið í forgangi á árinu.

„Endurskoðunin hefur verið unninn samhliða fyrir nokkra staði enda mörg sömu atriði sem þarf að huga að fyrir hvern stað.“

Þessi vinna er sögð langt komin fyrir Bolungarvík og Ólafsfjörð.

„Drög að endurskoðuðu hættumati hafa verið send til sveitarfélaganna og hættumat fyrir Bolungarvík var kynnt á íbúafundi í október.“

Þá hafi verið unnið að endurskoðun hættumats fyrir hluta Ísafjarðar, Siglufjarðar og Neskaupstaðar.

„Unnið var að skíðasvæðahættumati fyrir Bláfjöll og Skálafell og hafa drög að hættumati verið send til skíðasvæðanna til kynningar. Jafnframt var unnið að skíðasvæðahættumati fyrir Tungudal.“

Þá hafi úttekt á ofanflóðahættu í dreifbýli haldið áfram og megináhersla verið lögð á Eyjafjarðarsveit og Syðridal.

„Auk þess var unnið að samantekt sögulegra upplýsinga ofanflóða á nokkrum öðrum svæðum í dreifbýli og má þar nefna Jökuldal, Fljótsdal og Skriðdal.“

Ítarlegri úttekt á verkefnum nefndarinnar má finna á vef ráðuneytisins í skýrslu um starfsemi Ofanflóðanefndar 2024.