Starfshópur um jöfnun atkvæðavægis skili tillögum í desember

Miðað er við að starfshópur dómsmálaráðherra um jöfnun atkvæðavægis skili ráðherra frumvarpsdrögum fyrir 15. desember næstkomandi.

Ólafur Þ. Harðarson, Sigrún Helga Lund og Þorkell Helgason.
Ólafur Þ. Harðarson, Sigrún Helga Lund og Þorkell Helgason skipa starfshóp dómsmálaráðherra. Mynd/Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra hefur sett á fót starfshóp sem falið er að undirbúa frumvarp til breytinga á kosningalögum til að auka jafnræði í atkvæðavægi og þingsætadreifingu.

Fram kemur í frétt dómsmálaráðuneytisins að stofnun hópsins sé í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, þar sem kveðið sé á um að ráðast eigi í slíkar breytingar.

Haft er eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, að með skipan starfshópsins sé stigið gott skref í átt að auknu jafnræði gagnvart mikilvægum borgaralegum réttindum sem kosningarétturinn sé.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. Mynd/Dómsmálaráðuneytið

„Markmiðið er að tryggja að atkvæði allra landsmanna vegi sem jafnast. Það er grundvallaratriði í lýðræðislegu samfélagi og þar að auki mannréttindamál. Verkefni hópsins er að leggja fram faglega, yfirvegaða og framkvæmanlega tillögu sem stuðlar að því markmiði,“ segir ráðherra.

Fram kemur að formaður starfshópsins sé Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Auk hans skipa hópinn Sigrún Helga Lund, prófessor í tölfræði við Háskóla Íslands, og Þorkell Helgason, prófessor í stærðfræði.

Miðað er við að starfshópurinn skili ráðherra frumvarpsdrögum fyrir 15. desember 2025.