EES-ríkin, Ísland, Liechtenstein og Noregur, ákváðu í síðustu viku skipun nýrrar yfirstjórnar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Tveir halda áfram ein kemur ný inn í yfirstjórnina.
Í tilkynningu ESA kemur fram að Arne Røksund frá Noregi hafi verið endurskipaður sem forseti stofnunarinnar, Árni Páll Árnason endurskipaður af hálfu Íslands og Nuscha Wieczorek skipuð af hálfu Liechtenstein.
Þau taka til starfa 1. janúar 2026 og eru skipuð til fjögurra ára.
Fram kemur að Arne Røksund hafi tekið til starfa fyrir ESA árið 2022.
„Þar áður, frá mars 2017, gegndi hann starfi ráðuneytisstjóra norska varnarmálaráðuneytisins. Á árunum 2014-2017 var hann ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu.“
Hann er sagður eiga að baki langan feril í konunglega norska sjóhernum og hafi síðast gegnt þar stöðu aðmíráls. Þá sé hann með doktorsgráðu í sagnfræði.
Árni Páll Árnason hafi sömuleiðis fyrst tekið til starfa í yfirstjórn ESA 2022.
„Þar áður gegndi hann starfi varaframkvæmdastjóra Uppbyggingarsjóðs EES. Árni Páll er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og nam Evrópurétt við College of Europe.“
Fram kemur að Árni Páll hafi starfað í utanríkisþjónustunni að Evrópu-, viðskipta- og öryggis- og varnarmálum á árunum 1992-1998 og síðar verið lögmaður þar til hann tók sæti á Alþingi árið 2007.
„Árni Páll var félags- og tryggingamálaráðherra (2009-2010), efnahags- og viðskiptaráðherra (2010-2011) og formaður Samfylkingarinnar 2013-2016.“
Þá segir að Nuscha Wieczorek hafi verið varafastafullrúi Liechtenstein gagnvart Evrópusambandinu, en því embætti hafi hún gegnt síðan í janúar 2022.
„Áður starfaði hún í ýmsum stöðum hjá fastanefndinni í Brussel og hjá utanríkisskrifstofu Liechtenstein frá árinu 2017.“
Nuscha Wieczorek er með doktorspróf í lögfræði frá háskólanum í Basel í Sviss og LL.M.-gráðu frá Columbia-háskóla í New York.
„Hún hefur áður gegnt ýmsum rannsóknar- og kennslustörfum á sviði þjóðaréttar og stjórnskipunarréttar við svissneska háskóla. Hún tekur við af Stefan Barriga.“
Fram kemur að hlutverk ESA sé að tryggja að farið sé að reglum EES-samningsins á Íslandi, Liechtenstein og Noregi, sem geri ríkjunum kleift að taka þátt í innri markaði Evrópusambandsins.
ESA sinni skyldum sínum óháð ríkjunum þremur. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu ESA.