För akandi og hjólandi um Vonarskarð heimiluð í tilraunaskyni

Tekist hefur verið á um lokun Vonarskarðs fyrir umferð vélknúinna ökutækja og reiðhjóla frá því ákvörðun um hana var tekin 2013.

Vonarskarð
Vonarskarð. Mynd/Stjr-Auður Lilja Arnþórsdóttir

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest breytingartillögu svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs á stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins sem heimilar vélknúna umferð og hjólreiðar um Vonarskarð frá 1. september ár hvert og þar til svæðið verður ófært.

„Breytingin gildir í tilraunaskyni til fimm ára og fylgir henni ítarleg vöktunaráætlun,“ segir í færslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Umferð um Vonarskarð verði, eftir sem áður, heimil í samræmi við lög um náttúruvernd, á frosinni og snævi þakinni jörð ef frá sé skilin jarðhitasvæðin.

„Náttúruverndarstofnun verður ennfremur falið að skila framvinduskýrslu til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um málið á hverju ári og ráðuneytið mun, í samvinnu við stofnunina, skoða möguleika á aukinni vernd í og við viðkvæm svæði Snapadals.“

Fram kemur að tekist hafi verið á um lokunina frá því árið 2013. Þá var lokað fyrir umferð reiðhjóla og vélknúinna ökutækja í gegnum Vonarskarð og svæðið skilgreint sem göngusvæði.

„Í tilmælum ráðuneytisins til stjórnar þjóðgarðsins þetta sama ár var stjórninni falið að skoða sérstaklega málefni Vonarskarðs með það að markmiði að tryggja til framtíðar vernd og nýtingu gæða svæðisins með hagsmuni og samræmingu útivistar og náttúruverndar að leiðarljósi í samstarfi við helstu hagsmuna- og umsagnaraðila svæðisins.“

Vísað er til þess að á fundi svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs í nóvember 2024 hafi verið ákveðið að hefja breytingaferli á aðgengi um svæðið í tilraunaskyni.

24 stundir greindu frá tillögu svæðisstjórnar Þjóðgarðsins 21. september síðastliðinn.

Síðan þá hafi svæðisstjórn þjóðgarðsins unnið að tillögu að breytingu á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir svæðið. Hún hafi svo verið samþykkt 17. september síðastliðinn og borst ráðherra tveimur dögum síðar.

Bent er á að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðar sé meginstjórntæki þjóðgarðsins. Samkvæmt lögum um Vatnajökulsþjóðgarð sé það hlutverk ráðherra að staðfesta áætlunina að því gefnu að hún brjóti ekki í bága við lög eða reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð.

„Ráðherra hefur nú staðfest tillögu svæðisstjórnar og verður á tilraunatímabilinu lögð áhersla á landvörslu og eftirlit með svæðinu,“ segir í færslu ráðuneytisins.