Alþingi samþykkti í dag frumvarp Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, um breytingar á Menntasjóði námsmanna. Við atkvæðagreiðsluna þakkaði Logi þingheimi „snör handtök og góða vinnu“ um leið og hann boðaði áframhaldandi heildarendurskoðun á Menntasjóðnum.
Fram kemur í frétt menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðuneytis að vinna við hana sé þegar hafin í ráðuneytinu.
Fram kemur að meðal þess sem felist í nýsamþykktum lögum séu breytingar á fyrirkomulagi námsstyrkja þannig að námsmaður fái 20 prósenta styrk á hverri önn að uppfylltum kröfum um námsframvindu og 10 prósenta styrk ljúki hann námi með prófgráðu innan tilskilinna tímamarka.
Styrkurinn hefur til þessa verið 30 prósent og veittur í eitt skipti við námslok, ljúki námsmaður námi innan tilskilinna tímamarka.
„Með því að skipta styrknum upp er búinn til aukinn sveigjanleiki og má áætla að námsmenn fái a.m.k. einhvern styrk á námstímanum, jafnvel þótt viðkomandi þurfi að hverfa frá námi af félagslegum eða óvæntum ástæðum,“ segir í umfjöllun ráðuneytisins.
Þá eru nýju lögin einnig sögð fela í sér að upphafstími afborgana námslána sé lengdur úr tólf mánuðum í átján mánuði eftir námslok og að heimild til að endurgreiða eitt lán í einu sé rýmkuð.
„Þannig nær heimildin nú bæði til lána með tekjutengdum afborgunum og til lána með jöfnum afborgunum. Þetta er gert í þeim tilgangi að námsmenn lendi ekki í mjög íþyngjandi greiðslubyrði eins og komið hefur fyrir suma lánþega samkvæmt fyrri lögum.“
Loks hafi verið gerðar breytingar til að skýra betur vaxtabyrði námslána, sem hvíli á ríkissjóði fram að námslokum, sem og á vaxtaviðmiðum námslána þannig að skýrt sé að námslán skuli bera sömu breytilegu vexti og kjör endurlána ríkisins úr ríkissjóði hverju sinni.