Af 2.213 nýnemum sem hófu BA nám í íslenskum háskólum haustið 2017 brautskráðust 42,3 prósent með bakkalárgráðu á tilsettum tíma eftir þrjú ár. Í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands kemur fram 1,3 prósent til viðbótar hafi útskrifast úr öðru háskólanámi, svo sem tveggja ára diplómanámi.
„Þá höfðu 18,3% hætt námi eða tekið sér tímabundið hlé en 38,0% voru enn í háskólanámi án þess að hafa brautskráðst.“
Heldur fleiri konur en karlar luku námi á tilsettum tíma, en eftir þrjú ár höfðu tæplega 44 prósent kvenna brautskráðst úr háskólanámi en rúm 40 prósent karla.
„Þegar litið er á stöðu þeirra sem hófu nám haustið 2017, sex árum eftir innritun, þ.e. árið 2023, og þremur árum eftir að námi hefði átt að vera lokið, höfðu 71,8% nýnema lokið bakkalárgráðu og 1,7% höfðu lokið öðru háskólanámi.“
Hagstofan segir þetta vera hærra brautskráningarhlutfall en í fyrri tölum, hvort sem litið sé til hlutfalls þeirra sem luku prófi á þremur árum eða sex árum. Að sama skapi hafi dregið úr brottfalli.
„Fyrri tölur náðu til nýnema haustsins 2004, 2011 og 2014. Þeir nemendur sem útskrifuðust árið 2020 að loknu þriggja ára námi, eða árið 2023, að loknu sex ára námi stunduðu nám á tímum kórónuveirufaraldursins. Ekki er ljóst hvaða áhrif það hafði á hlutfall þeirra sem luku námi og brottfall nemenda.“
Alls hætti nærri fimmtungur, eða 18,4 prósent, nýnema haustsins 2017 námi á fyrsta námsári en 80,3 prósent héldu áfram námi til bakkalárgráðu og 1,3 prósent höfðu skipt yfir í annað háskólanám.
Þá kemur fram í samantekt Hagstofunnar að af 2.213 nýnemum í námi til bakkalárgráðu haustið 2017 hafi 740 lokið framhaldsskólanámi sama ár eða 33,4 prósent.
„Hlutfallið hefur farið lækkandi frá árinu 2011 þegar það var 42,9%.“

Þá bendir Hagstofan á að þremur árum eftir upphaf náms hafi 47,3 prósent nýnema sem eiga háskólamenntaða foreldra útskrifast af háskólastigi en 41,1 prósent nýnema sem eiga foreldra sem hafa lokið grunnmenntun, grunnskólanámi eða stuttu námi á framhaldsskólastigi.
„Hlutfall brautskráðra var lægst á meðal nýnema sem eiga foreldra með starfs- eða framhaldsskólamenntun en það var 37,4%. Brotthvarf eftir þrjú ár var mest hjá börnum foreldra með starfs- eða framhaldsskólamenntun, eða 23,1%, en það var 15,5% á meðal barna háskólamenntaðra.“
Þá kemur fram að þegar tölur um brautskráningarhlutfall og brotthvarf í háskólum eftir rekstrarformi hafi verið skoðaðar hafi mátt sjá að eftir þrjú ár hefðu 50,5 prósent nemenda einkaskóla brautskráðst á móti 40,8 prósentum nýnema í opinberum háskólum.
„Sex árum eftir upphaf náms er brautskráningarhlutfallið einnig hærra í einkaskólunum eða 78,1% á móti 71,6% í opinberu skólunum.“
Grunngögn og upplýsingar um aðferðafræði er að finna í færslu Hagstofunnar.