Heimilin eiga nærri tvo þriðju hluta bílamengunar

Losun vegna aksturs var 823 kílótonn af CO₂ árið 2024, sem jafngildir 12,1 prósenti af heildarlosun íslenska hagkerfisins.

Morgunumferð í Reykjavík. Bílar á Vesturlandsvegi.
Morgunumferð í Reykjavík. Bílar á Vesturlandsvegi. Mynd/ÓKÁ

Heimilin eru ábyrg fyrir 63 prósentum af losun frá vegasamgöngum á árinu 2024, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Fram kemur að losun hafi dregist líttillega saman á milli ára.

„Árið 2024 var losun gróðurhúsalofttegunda frá hagkerfi Íslands 6.811 kílótonn af CO₂. Þessi losun er 3,7% minni en árið 2023 en losun frá hagkerfinu jókst verulega eftir kórónuveirufaraldurinn,“ segir í færslu Hagstofunnar.

Fram kemur að í heild stafi losun frá hagkerfi Íslands að mestu frá flutningastarfsemi, eða sem svarar 33,2 prósentum. Þá standi framleiðslugreinar að baki 29,6 prósentum, en landbúnaður og sjávarútvegur að baki 19,2 prósentum.

Losun frá heimilum hafi verið 7,8 prósent af heildarlosun hagkerfisins.

Þá segir að losun vegna aksturs hafi verið 823 kílótonn af CO₂ árið 2024, sem jafngildi 12,1 prósenti af heildarlosun hagkerfisins.

„Akstur heimilisbíla, sem er jafnframt helsti uppruni losunar heimila, nam 304 kílótonnum og var 63,1% af heildarlosun vegasamgangna.“