Hrein fjáreign heimila jókst um 13,5 prósent milli ára

Smápeningar, klink, íslensk mynt. Krónur. ISK.
Smápeningar á borði. Mynd/ÓKÁ

Heildarfjáreignir innlendra aðila námu rúmlega 44.068 milljörðum króna við árslok 2024 samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fjármálareikninga Hagstofu Íslands. Í nýbirtum tölum kemur fram að heildarskuldbindingar hafi á móti numið m 41.730 milljörðum króna.

„Hrein fjáreign innlendra aðila var því jákvæð um 2.338 milljarða króna í lok árs 2024 en var jákvæð um 1.595 milljarða árið áður,“ segir Hagstofan.

Auking hreinnar fjáreignar á milli ára nemur því rúmum 46 prósentum.

Þá kemur fram að fjáreignir heimilanna hafi í lok árs 2024 staðið í tæplega 12.639 milljörðum króna og fjárskuldir í rúmlega 3.357 milljörðum króna.

„Hreinar fjáreignir heimila jukust á milli ára úr tæpum 8.175 milljörðum króna árið 2023 í rúma 9.281 milljarð árið 2024.“

Breyting á hreinum fjáreignum heimilanna á milli ára nemur þannig 13,5 prósentum.

Hagstofan segir heildarfjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja hafa numið rúmlega 7.893 milljörðum króna í árslok 2024 en fjárskuldir staðioð í 13.411 milljörðum. Fjáreignir fjármálafyrirtækja hafi svo verið um 20.782 milljarðar króna í lok árs 2024 en fjárskuldbindingar numið 20.772 milljörðum.

„Í lok árs 2024 námu fjáreignir hins opinbera 2.604 milljörðum króna, eða sem nemur tæplega 57% af VLF, og skuldir tæplega 4.167 milljörðum eða 91% af VLF.“

Þá kemur fram í samantekt Hagstofunnar að fjármálaeignir erlendra aðila með innlenda mótaðila hafi staðið í rúmlega 4.708 milljörðum króna í árslok 2024 og skuldbindingar í tæpum 7.023 milljörðum.