Í byrjun þessa árs bjuggu tæplega 63 prósent landsmanna á Stór-Reykjavíkursvæðinu, að því er fram kemur í nýrri samantekt Hagstofu Íslands. Í byggðinni frá frá Hafnarfirði til Mosfellsbæjar bjuggu þá 244.536 manns.
Þá kemur fram að þéttbýlisstaðurinn Selfoss og nágrenni hafi um síðustu áramót í fyrsta sinn farið yfir tíu þúsund einstaklinga.
„Þar með voru þrír þéttbýlisstaðir með 10.000-99.999 íbúa, Keflavík og Njarðvík með 22.377 íbúa, Akureyri og nágrenni með 20.159 íbúa og Selfoss og nágrenni með 10.478 íbúa,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Samanlagt hafi 53.014 einstaklingar búið á þessum stöðum sem jafngildi 13,6 prósentum mannfjöldans. Í strjálbýli hafi búið 21.498 einstaklingar eða 5,5 prósent mannfjöldans.
Í strjálbýli eru alls 39 staðir með 50-199 íbúa en þar býr aðeins 1,0% mannfjöldans.“

Konur frekar í þéttbýli
Hagstofan segir kynjahlutfall nokkuð breytilegt eftir þéttbýlisstigi.
„Á Stór-Reykjavíkursvæðinu voru 1.032 karlar á hverjar 1.000 konur. Þetta hlutfall eykst körlum í vil eftir því sem þéttbýlið verður fámennara þótt ekki sé um að ræða fyllilega línulegt samband.“
Í fámennustu þéttbýlisstöðunum, með færri en 300 íbúa, hafi verið 1.133 karlar á móti hverjum 1.000 konum ,en í strjálbýli hafi hlutfallið verið lægra eða 1.121 karlar á móti 1.000 konum.
Hagstofan segir mörk þéttbýlisstaða endurskoðuð á fimm ára fresti, á árum sem enda á 0 eða 5 og að ný mörk hafi verið dregin fyrir 1. janúar 2025.
„Mörkin eru fundin með því að tengja saman staðföng sem eru 200 metra eða skemur hvert frá öðru. Þéttbýlisstaður getur þannig náð yfir byggðakjarna í fleiri en einu sveitarfélagi.“
Ein breyting var gerð á aðferðarfræði Hagstofunnar, en nú þarf að lágmarki að vera búið í tíu staðföngum til þess að byggðakjarni geti myndast.
„Einn byggðakjarni fór yfir 200 íbúa markið og fór því úr því að teljast strjálbýli yfir í að teljast þéttbýli en það var Tjarnabyggð í Sveitarfélaginu Árborg.“