Fjármála- og efnahagsráðherra, mælti í dag á Alþingi fyrir frumvarpi til laga um kílómetragjald á ökutæki. Með frumvarpinu er lagt til að greitt verði kílómetragjald í stað olíu- og bensíngjalda.
Fram kemur í frétt fjármála- og efnahagsráðuneytisins að kílómetragjald hafi verið tekið upp fyrir rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla árið 2024 og að frumvarpið miði við að það verði tekið upp fyrir öll ökutæki árið 2026.

„Með frumvarpinu er stigið stórt skref í átt að nýju tekjuöflunarkerfi af ökutækjum og eldsneyti frá og með fyrsta janúar 2026 vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu, þar með talið ökutækjum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti,“ sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann mælti fyrir frumvarpinu.
Hann sagði frumvarpið að mestu óbreytt frá því það var lagt fram á síðasta þingi, en þá hafi það ekki náð fram að ganga.
Þá sagði hann nauðsynlegt að breytingarnar, þar sem olíu- og bensíngjöld falli niður í verði eldsneytis skili sér strax til neytenda þegar breytingarnar taka gildi um áramót.
„Miklu máli skiptir að olíufélögin axli ábyrgð og sýni í verki að lækkað eldsneytisverð skili sér til neytenda strax þann fyrsta janúar 2026.“
Til þess að tryggja að svo verði og veita olíufélögunum aðhald ætli stjórnvöld að leita liðsinnis verðlagseftirlits Alþýðusambandsins og Félags íslenskra bifreiðaeigenda um eftirlit með þróun verðlags á eldsneyti. Og að Samkeppniseftirlitið hafi sérstakt eftirlit með þróun samkeppnisaðstæðna á eldsneytismarkaði.
Þær litlu breytingar sem gerðar hafi verið á frumvarpinu séu að tekið hafi verið tillit til breytingatillagna efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og tiltekinna athugasemda frá skattinu.
Í umsögn ráðuneytisins segir að kílómetragjald sé gjald sem greitt sé fyrir hvern ekinn kílómetra og komu í stað olíu- og bensíngjalda sem falli niður.
„Frumvarpið miðar við að kostnaður vegna aksturs meðalbensínbíls verði óbreyttur en á sama tíma verður áfram hagstæðara að aka um á vistvænum bílum.“
Ráðuneytið bendir á að á upplýsingasíðunni Vegir okkar allra sé að finna allar helstu upplýsingar um tilefni kerfisbreytingarinnar, hvaða áhrif hún hafi og svör við öllum helstu spurningum um breytinguna.

Fram kom í orðum ráðherra á Alþingi í dag að gert sé ráð fyrir að breytingarnar sem lagðar eru til hafi jákvæð áhrif á tekjur ríkissjóðs. Áætlaður tekjuauki af breyttu tekjuöflunarkerfi verði um 3,3 milljarðar árið 2026.
„Þá eru talin með hliðaráhrif á virðisaukaskatt sem eru áætluð neikvæð um 2,7 milljarða árið 2026 og koma til lækkunar á tekjum ríkissjóðs. Tekjur af ökutækjum og eldsneyti verða þá um 1,6% af vergri landsframleiðslu árið 2026,“ sagði Daði í ræðu sinni.
Á móti feli frumvarpið í sér aukinn kostnað hjá Skattinum, Samgöngustofu og Fjársýslunni, meðal annars vegna álagningar og eftirlits, upplýsingagjafar og þjónustu við gjaldendur, reksturs og viðhalds tölvukerfa of fleiri þátt. Auk þess sé gert ráð fyrir auknum innheimtukostnaði við innleiðingu á nýju kílómetragjaldi.