Ný lög til að tryggja betur réttindavernd fatlaðs fólks 

Ástæða þótti til að breyta heiti nýrra heildarlaga um réttindavernd fatlaðs fólks til að endurspegla betur efni laganna.

Bílastæðamerking, fatlaðir, hjólastóll
Mynd/AbsolutVision á Unsplash

Drög að nýjum heildarlögum um réttindavernd fatlaðs fólks hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, leggur frumvarpsdrögin fram, en gert er ráð fyrir að þau leysi af hólmi gildandi lög.

„Meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi stuðning við vernd hvers konar réttinda og stuðla að bættu jafnrétti og aðgengi í þjónustu við fatlað fólk,“ segir í umfjöllun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.

Þá sé í frumvarpinu lögð áhersla á að tryggja að sjálfsákvörðunarréttur fatlaðs fólks sé virtur og fyllsta réttaröryggis gætt þegar brýna nauðsyn beri til að grípa inn í líf þess. Við gerð frumvarpsins hafi verið tekið mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Brugðist við kerfislægum hindrunum

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Í frumvarpinu legg ég áherslu á að tryggja aðgang fatlaðs fólks að samfélaginu og stuðning til sjálfstæðs lífs. Frumvarpið er afar mikilvægt og ég er stolt af því að það sé komið fram,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í frétt ráðuneytisins.

Fram kemur að frumvarpinu sé ætlað að skerpa á hlutverki réttindagæslu fyrir fatlað fólk og tryggja skýrari verkaskiptingu á milli sýslumanna og réttindagæslu svo ljóst sé til hvers ætlast sé af þeim.

„Frumvarpinu er einnig ætlað að bregðast við kerfislægum hindrunum sem ákveðinn hópur fatlaðs fólks hefur mætt við aðgang að fjármálum sínum, einkum þeirra sem búa í búsetukjörnum og geta ekki notað rafræn skilríki.“

Sömuleiðis er frumvarpinu sagt ætlað að auka skilvirkni í málsmeðferð og ákvarðanatöku í málum er varði nauðung í þjónustu við fatlað fólk, einfalda ferla, minnka biðtíma eftir ákvörðun, auðvelda eftirlit og tryggja að mál séu áfram afgreidd á samræmdan hátt.

Lögin fá nýtt heiti

Þá segir að ástæða hafi þótt til að breyta heiti laganna í „réttindavernd fatlaðs fólks“ þar sem heitið lög um „réttindagæslu fyrir fatlað fólk“ hafi ekki endurspeglað efni þeirra að fullu.

Lögin fjalli enda ekki eingöngu um réttindagæslu, heldur einnig um hlutverk persónulegra talsmanna við að aðstoða notendur við gæslu og vernd hagsmuna sinna og um bann við beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk.

Frestur til að skila inn umsögnum við lögin í samráðsgáttinni rennur út 12. október næstkomandi.